by saemi » Mon 06. Feb 2006 18:55
Þetta er leiðinlegt að heyra.
Það verður samt að vanda sig við að skrifa ekki of harðar greinar um svona lagað á opinberum vettvangi. Það þarf 2 til að deila og þó ég dragi ekki í efa að þetta hefur ekki verið allt í lagi hjá þeim, þá hafa þeir kannski svör á móti við þessu að hluta eða öllu. En það góða við þetta er að mér sýnist að þeir séu að koma mjög til móts við þig og leiðrétta þessi leiðindi.
Ég hef lent í veseni hjá B&L eins og mörgum öðrum. En það sem upp úr stendur er að maður hefur mætt þar skilingi og vilja til að laga hlutina.
Svo er það alveg rétt með eldri bílana. Það er bara einfaldlega ekki litið á þá sem jafn mikla bíla eins og eldri bílana. Ásamt því sem kunnátta og þekking á þeim er lítil hjá mörgum þarna, ólíkt nýrri týpunum.
Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,