by saemi » Tue 25. Apr 2006 00:31
Það er allt í lagi að setja mjallarbón á allan bílinn í einu, en þá verður líka að bera annað bón, t.d. sonax eða mjallar hraðbón á það aftur (litla fleti í einu) áður en það er strokið af. Bíllinn verður skýjaður all right, en þetta endist og endist og endist. Eftir 2 þvotta verður hann orðinn nokkuð góður hvað varðar skýjunina og svo endist þetta með geðveikri bónhúð svona 2-3 mánuði auðveldlega.
Já og það sem ég ætlaði nú upphaflega að benda á er að það heitir samkunda. Samkunta er alllllllt annað.
Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,