Jæja,. nú er kominn tími á pistil.
6000km komnir, ég er gersamlega orðlaus yfir þessum bíl. Ég er líka "sennilega" eini íslenski M5 eigandinn sem er í þeirri aðstöðu að keyra bílinn dags daglega eins og á að keyra hann, í fullkomri skilgreiningu orðasambandins "blandaður akstur" og tel mig vera mjög heppinn að geta það.
Innanbæjar er hann ljúfur sem lamb, virkilega þægilegur í umgengni, rúmgóður, hljóðlátur, jafnvel mjúkur. Skottið er stórt, stærra en ég reiknaði með.
Ég tók bílinn nokkuð hlaðinn búnaði, þ.e. búnaði sem ég nota, ekki bara show-off búnað. T.d. sleppti ég 6diska spilaranum, en lét í staðinn setja AUX input fyrir mp3 handheld (t.d. iPod). Ég tók hitavarið gler og það svínvirkar, tók gartínurnar afturí fyrir stelpuna og það er must. All round þá er þetta drauma fjölskyldubíllinn.
HUD kerfið er æðislegt, sérstaklega þægilegt þegar maður er að keyra með NAVI og enn betra þegar maður er að tracka. þá þarf maður ekkert að líta á mælana.
D-mode hefur komið mér all svakalega á óvart, sérstaklega hvað notagildi varðar. Ég stend mig oft að því að keyra bílinn í AUTO mode. Helvíti þægilegt innanbæjar. All in all þá er SMG3 alveg magnað fyrirbæri. Skiptingarnar geta verði frá ultra smooth í brjálæðislega brútal og það eftir pöntun.
Eyðslan er dálítið í hærri kantinum, en það er vel hægt að krúsa á 130 með 12L 100, ef það er það sem maður vill gera. Við 200 fer eyðslan dálítið upp.
Nú er ég með 12 hringi á slaufunni undir beltinu og þar af 8 hringi á E60M5. Ég hef því miður bara keyrt 2 bíla þarna (setið í 3-4) og M5inn er gríðarlega solid á henni. Maður gersamlega plantar honum í begjurnar, fjöðrunin sér um rest. Gripið er miklu meira en ég hafði reiknað með, sérstaklega front end, en það verður að taka með í reikningin að ég keyri ekki á limiti bílsins þannig að ég undirstýri ekki mikið.
Það er mjög auðvelt að leika sér að því að powerslæda, DSC off mog smá gjöf er nóg til að fá afturendan til að poppa passlega mikið út til að það líti vel úr fyrir crowdið og sé í leiðinni auðveldlega controlað.
S6! ég hef skirfað smá um það áður, en það verður ekki sagt nógu oft að Shift mode 6 er BRUTAL. McHammer orðaði það vel... "its Hammer time" þegar SMG sleggjar gírunum í.
Paddle shifter er algjör snilld á braut, ég er ekki endilega viss um að tímarnir batni mikið á milli paddle shifter og manual hjá góðum bílstjóra, en hvað ÖRYGGI varðar þá er þetta þvílíkur munur, maður er ALLTAF með báðar hendur á stýri, sem ég gæti ekki hugsað mér að sleppa á svona braut.
Ég ræddi slatta við Ringtaxi bílstjórann (ekki Sabine þó) um bílinn og hvernig hann hefði komið út. Hann sagði að stökkið frá E39M5 hefði verið mikið. Hann var mjög ánægður með vélina og fjöðrunina, hann sagði að gírkassinn væri einn sá besti sem hann hefði keyrt. Ég spurði hann út í bilanir og hann sagði að E60 hefði komið vel út, betur en E39. Ringtaxi bílarnir eru EKKI með moddaðar bremsur, en þeir keyra með harðari bremsuklossa, eitthvað sem hann mælti EKKI með að ég myndi gera við minn, því að hann yrði ókeyrandi í bleytu. Hann vildi samt ekki meina að OEM bremsurnar væru slakar, en klossarnir slitna of hratt fyrir Ringtaxi crewið ef þeir eru OEM mjúkir. Auk þess sá ég að Ringtaxi eru komnir á Michelin Pilot Sport2, en ég held að þeir séu með samning við Michelin.
Anyway..... all in all held ég að þetta sé ,,,,,BESTI,,,,, nýji bíll í heimi, ekki bara fyrir peninginn heldur almennt. Hann er rosalega fjölhæfur, virkilega praktískur, þokkalega verðlagður og ágætlega útlítandi. EN og það er mátulega stórt EN... ég er nett hlutdrægur.
Næst ætla ég samt að fara á M3 Cabrio á slaufuna.. maður fer hægar um, en hávaðinn í mótornum bætir það upp.