bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 06:01

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Mon 17. Apr 2006 17:40 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það er ENGIN ástæða til að skipta um olíu örar en á 10k fresti. Ef að þú skiptir alltaf um síu, þá er eina hættan að olían súrni og það þarf talsvert meira en ár til þess að það gerist.

Svo á auðvitað að kaupa góða olíu - en rétta þykkt.

Það er reyndar eitt í þessu, ef það var léleg olía á bílnum fyrir, þá þarf að skipta fljótlega aftur þegar þú ert kominn með gæðaolíu þar sem hún verður kolsvört mjög fljótlega þegar hún hreinsar upp eftir ruslið sem var á bílnum.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 17. Apr 2006 19:53 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Thu 09. Jun 2005 18:02
Posts: 71
Location: Akureyri
Tekið af Vefsíðu Leós sem ég mæli með að menn skoði : http://www.leoemm.com/

Nokkur atriði varðandi vélarolíu
Það væri hægt að flytja langan fyrirlestur um smurolíu, þykktarflokkun, fjölþykktareiginleika og gæðastig. Oft mætti ætla af því sem fullyrt er um smurolíu að hún væri öll af sömu rót runnin. En svo er ekki. Smurolíur skiptast í tvo flokka, annars vegar er smurolía sem unnin er úr jarðolíu með hreinsun en hins vegar smurolía sem framleidd er með efnafræði, þ.e. syntetísk smurolía. Syntetíska smurolíu er auðveldara að efnabæta þannig að hún öðlist ýmsa eiginleika sem olía unnin úr jarðolíu hefur ekki. Flokkun á þykktarsviði, séreiginleikum og gæðum smurolíu er flókið mál, ekki síst vegna þess að ekki er notast við sömu staðla - bæði í Bandaríkjunum , Evrópu og Asíu eru í gildi mismunandi staðlar um ýmsa flokkun á smurolíu auk þess sem einstaka bílaframleiðendur styðjast við eigin staðla (t.d. M-B og VW).

Eðlis síns vegna þynnast feitir vökvar við hitnun: Tólg rennur ekki fyrr en hún hefur hitnað og flýtur - það er þegar hún er orðin að floti. Því heitara sem flotið verður, því þynnra verður það og því hraðar rennur það. Í grundvallaratriðum gildir það sama um smurolíu. Af því leiðir og má augljóst vera að smurolía sem er af ákveðinni þykkt við 5°C er ekki af sömu þykkt við 75°C heldur þynnri. Rennslishraði smurolíu með seigjutöluna 5 breytist meira með hitastigi en rennslishraði smurolíu með seigjutöluna 30 - því hærri sem seigjutala smurolíu er því minni áhrif hefur hitastigsbreyting á rennslishraða hennar.

Með því að blanda ákveðnum kemískum efnum saman við smurolíu má draga úr áhrifum hita á rennslishraða; annars vegar má koma í veg fyrir að smurolía storkni í miklum kulda og hins vegar og jafnframt - má varna því að hún þynnist um of við að hitna. Smurolía sem þannig er efnabætt nefnist fjölþykktarolía. Þessi eiginleiki smurolíunnar sem gerir hana óháðari hitabreytingum er mælanlegur og mælikvarðinn nefnist seigjusvið. 5W20 er minna seigjusvið en 15W40. Í 10 stiga frosti er rennslishraði 5W20 meiri en 15W40. Við 90°C er rennslishraði 5W20 meiri en 15W40. Þetta þýðir í grófum dráttum að smurolía með seigjusviði 5W20 er þynnri og flýtur betur við lægra hitastig og þynnist meira við hærra hitastig en 15W40.

Vandinn er sá að margir misskilja seigjusvið og taka það sem mælikvarða á þykkt. Verra er að margir gera sér ekki grein fyrir því að kemísku efnin sem gefa smurolíu fjölþykktareiginleika eyðast úr olíunni með notkun, þau hverfst með kolefni (sóti) og brennisteinssýru, eimast við margendurrekna hitun og kælingu, brenna jafnvel og /eða falla út. Fjölþykktarolía sem verið hefur á vél 15 þúsund km hefur ekki þá fjölþykktareiginleika sem hún hafði ný og að þessu leyti eru gæði smurolía mælanlega misjöfn á milli tegunda/vörumerkja. Þetta þýðir að smurolían með mestu fjölþykktareiginleikana - víðasta seigjusviðið, getur reynst skaðlegust vél sé hún notuð of lengi. Það er í því ljósi sem ber að skoða hátækniolíur með tiltölulega þröngt seigjusvið, t.d. 5W20.

Varðandi íslenskar aðstæður myndi ég álíta að smurolíu með seigjusviðið 5W20 ætti að mega nota á nýlega vél sé hún endurnýjuð á 10 þús. km. fresti. Tilgangurinn er þá að draga sem mest úr innra núningsviðnámi vélarinnar, ekki síst við gangsetningu en þótt það kunni að hljóma ótrúlega veldur gangsetning kalldrar vélar um 80% af sliti.

L.M.J.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Apr 2006 14:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
Væri Esso Ultron 5W40 of þunn?..erum að ræða um sama mótor....

Væri flott ef einhver gæti sagt mér hvað Zahnriemen og Keilriemen og Rolle þýði..vonandi eithvað af þessu tímareim ? :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Apr 2006 16:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Steinieini wrote:
Væri Esso Ultron 5W40 of þunn?..erum að ræða um sama mótor....

Væri flott ef einhver gæti sagt mér hvað Zahnriemen og Keilriemen og Rolle þýði..vonandi eithvað af þessu tímareim ? :)


Zahnriemen = tímareim

Keilriemen = viftureim

Rolle: giska á strekkjari :lol:

Aðrir áhugasamir mega endilega leiðrétta bullið í mér ... nú eða staðfesta.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Apr 2006 22:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
Ok, flott þá var skipt um þetta fyrir 28þús km... fer ekki að koma tími á það aftur? hvað eru menn að skipta ört ?

Fínt ef einhver gæti commentað á olíuna...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Apr 2006 22:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
10-40 eins og oft hefur komið fram


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Apr 2006 03:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Steinieini wrote:
Ok, flott þá var skipt um þetta fyrir 28þús km... fer ekki að koma tími á það aftur? hvað eru menn að skipta ört ?

Fínt ef einhver gæti commentað á olíuna...


Ef þú ert að tala um tímareim þá endist hún max í 90þús km eða 5 ár. Gott að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessum málum þó. Vona að þú sért ekki að panikka eftir 28 þús km. Þetta er í flestum tilfellum mjög dýrt svo að fólk er ekki að þessu neitt sérstaklega til að leika sér, ekki einu sinni þó menn geti gert þetta sjálfir. Hins vegar ef t.d. olía lekur á reim hjá þér þá gæti verið málið að stoppa lekann og skipta um reim eftir það ef olían hefur lekið á hana.

Ef þú ert með vél eins og t.d. m20b25 eða álíka, þ.e. línu sexu þá er talsvert vesen að skipta um þetta og í öllu falli mælt með að skipta um vatnsdælu í leiðinni. Að skipta um tímareim er jafn mikið mál og að skipta um vatnsdælu. Spurning hvernig þetta er hjá þér.

Viftureimarnar eru svo annað mál, væntanlega ein fyrir viftuna sjálfa og ein fyrir vökvastýrið. Að mínu viti þarf ekki að hugsa um það nema í kringum tímareimaskipti því þetta eru sjálfsagt reimar af svipuðu tagi, nú nema að það ískri eitthvað ógeðslega í þessu eða álíka. Ef reimin fer á viftunni þá hitar bíllinn sig væntanlega úr hófi og maður ætti nú að taka eftir því strax, sama með ef reimin fer á vökvastýrinu þá fer það ekki á milli mála.

Strekkjarinn er nú svo yfirleitt (alltaf) tekinn á sama tíma og tímareimin.

Varðandi olíuna þá er 10 þús km ekkert vitlaus tala. Síðast þegar ég fór þá skellti hann 12 þús fram í tímann á mig og ég er reyndar búinn að skipta um olíu í milli þegar ég skipti um pakkningar en ég á 2000km í þetta hjá mér núna og fer að fara aftur til að halda smurbókinni aftur og til að fylgjast með hvort að olían sé kolsvört eða gúddí.

Svo eru öfgamenn í þessu öllu til :lol: Ef ég hef eitthvað misskilið þig þá biðst ég afsökunar á því. Það er hægt að skilja póstinn þinn sjálfsagt á fleiri en einn vegu.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Apr 2006 10:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
Takk fyrir gott svar geirinn..

djövuls vesen að eiga þá 8Lítra af esso ultron :lol: væri einhver til í að skipta við mig á góðri 10/40 olíu í staðinn fyrir Ultron ? á líka Olíufílter í M60/3ltr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 23. Apr 2006 14:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
smá innskot.. tímareimin í e36 318 bílnum mínum fór eftir 30 þús og það endaði í kostnaði upp á 180 þús ;) jibbí kóla... og svo sprengdi ég vélina nokkrum mánuðum seinna...:) en það er annað mál...:) bara innskot.. en Hafþóri fannst ekkert svo óeðlilegt að hún væri að fara í 30-40 í þessum bíl... did not know that :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 01. May 2006 13:46 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Það er alls ekki dýrt að skipta um tímareim í m20 (allavegana ef þú gerir það sjálfur en lætur ekki t* taka þið í ra**gatið)

Tímareim er á milli 2-3000
Strekkjari er á milli 4-5000
Vatnsdæla kostar 7000 ef menn vilja skipta um hana
Svo þarftu að splæsa í coolant

Tekur tvo tíma að skipta um þetta ef þú hefur einhverja þekkingu
á bílum og vélum,,, annars eitthvað lengur.

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 01. May 2006 13:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Posts: 1908
Location: Akureyri
þá var ég tekinn í r*****ið því ég var rukkaður um 60þ fyrir vinnuna bara við að skipta um tímareim! þeir sögðust hafa lent í einhverju brasi og eitthvað.. En hlutirnir kostuðu ekki nema 15-20þ max..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 01. May 2006 13:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
mattiorn wrote:
þá var ég tekinn í r*****ið því ég var rukkaður um 60þ fyrir vinnuna bara við að skipta um tímareim! þeir sögðust hafa lent í einhverju brasi og eitthvað.. En hlutirnir kostuðu ekki nema 15-20þ max..


:whistle: svekkjandi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 01. May 2006 14:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Posts: 1908
Location: Akureyri
Ramer wrote:
mattiorn wrote:
þá var ég tekinn í r*****ið því ég var rukkaður um 60þ fyrir vinnuna bara við að skipta um tímareim! þeir sögðust hafa lent í einhverju brasi og eitthvað.. En hlutirnir kostuðu ekki nema 15-20þ max..


:whistle: svekkjandi


eitt orð yfir þetta já :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 01. May 2006 14:31 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 15. Nov 2004 10:52
Posts: 54
Ég er að nota Helix Ultra 5W/40 á minn og skipti um á 5000 Km. +- 1000

_________________
Lalli S: 8926622
Image
E32 750i "91
Volvo S70 2.4l "00


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 29 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group