Búinn að tilkeyra drifið og skipta um olíu á því. Búinn að skemmta mér svolítið eftir að það var gert. Þó hef ég tekið því nokkuð rólega. Bíllinn hefur verið að eyða ca. 12-13 lítrum á hundraðið upp á síðkastið og hefur lítið hækkað þrátt fyrir aðeins aggressívari keyrslu. Ekki verra ef bensínið fer að hækka.
Setti X-brace undir bílinn að framan, hlakka til að prófa það betur á sumardekkjunum í betri færð. Meiri stífleiki (minna flex) í kringum framfjöðrunina finnst mér en er ekki búinn að taka það vel á bílnum að virkilegur munur finnist.
Búið er að endurforrita tölvuheilann í bílnum og ætti hann því að vera eins "up to date" og mögulegt er.
Var annars að kaupa mér annan gang af original ///M felgum eins og sumarfelgurnar mínar.
Síðan er það bara spurning hvað verður gert næst.


