Þannig er að ég er búinn að vera á 540i í 2 - 3 mánuði.
Eitt langar mig að vita, þegar ég set í gang, stekkur vélin fullharkalega í gang, þeas beint í 1200 - 1300 snúninga sem mér finnst óþarfi. Auðvitað dettur hann niður í rólegheitum aftur og þetta er alls ekki til vandræða.
Bara ekki eins og ég myndi gera, réði ég einhverju.
En hjá ykkur?
Þegar það er 10 stiga frost og allt helfrosið og maður vill vera nettur, finnst mér þetta óþægilegt, það er eins og maður sé með bensínið vel niðri þegar maður startar.
Smáhugleiðingar.
