by xiberius » Wed 12. Apr 2006 19:13
Þakka hlý orð.
Já, bíllinn stóð sig eins og hetja, og gerði ákkurat það sem hann átti að gera. Ekki einu sinni mar eftir belti eða neitt, þannig að ég myndi segja að ég sleppi alveg hreint fáránlega vel frá þessu.
Held að parið í Daewoo'num hafi sloppið við teljandi meiðsl líka, reyndar ekkert heyrt í þeim frá því að þetta gerðist...
Heyrði hinsvegar í lögreglunni um daginn, og sá sem tók skýrsluna skrifaði hana víst ekki upp nógu vel, þannig að hún var send til hans aftur, og þar sem hann er ekki á vakt aftur fyrr en á sunnudag er ekki mikið að fara að gerast fyrr en eftir páska.