Sælar,
Ég er að reyna að kaupa restina af því sem ég þarf að nota í þetta bremsudæmi hjá mér.
Ég hafði hugsað mér að nota tækifærið og kaupa vírofnar slöngur í þetta fyrsta maður er að fikta í þessu. En núna var að ég lesa um þetta swap og þá var einn að tala um að orginal slöngurnar hefðu ekki verið nógu langar að aftan til þess að þetta passaði. Munaði einhverri tommu eða svo.
Hann sagði að hann hefði keypt e46 slöngur og það hefði reddað þessu.
Málið er hinsvegar að þar sem svona vírofnar eru til sölu þá stendur alltaf að e36 noti sex slöngur en e46 fjórar.
Getur einhver hjálpað mér að finna út úr því hvort e36 geti notað fjórar. Ég er ekkert að fatta þetta, er búinn að vera að skoða
www.realoem.com en ég er ekki alveg að sjá það hvort þetta gæti passað.