Jæja, fór með kaggann til Tækniþjónustu bifreiða í dag og þeir skiptu um olíu á drifi,kassa og vél.
Einnig bað ég þá að líta aðeins yfir hann og kom í ljós að ballanstangarendarnir voru daprir þannig að það var skipt um þá
Það sem er að angra mig núna er eftirfarandi:
Hægra afturdekk nuddast aðeins upp í bretti á hraðahindrunum,
Spurning að setja aðeins lægri dekk,''rúlla'' brettin eða nýja gorma
En eins og einhver sagði ''rubbing is racing''
Klossarnir að aftan eru að verða búnir og ætla ég að reyna að skipta um þá í vikunni
Svo þarf að endurnýja tvo gúmmílista sem þétta blæjulokið, Ég mun einnig kikja á það í vikunni
Leðrið á sætunum er aðeins farið að láta á sjá, Ég ætla að prufa að bera á það leather treatment,Ef þið vitið um eitthvað gott efni í það megiði alveg benda mér á það
Það er smá rifa á blæjunni :( Ætla að tala við Seglagerðina Ægi um það.
Snúningsmælirinn stendur stundum aðeins á sér :?
En allt eru þetta minniháttar mál sem ætti að vera lítið mál að redda
Læt að lokum eina góða mynd fylgja..
