Já, sko. Með þessu kitti fylgdi nýtt wiring loom. Það er þannig að því er plús og mínus vír sem tengjast í sístraum, síðan er eitt plögg sem tengist í ljósbotn, þessir tengjast síðan í relay sem veitir síðan rafmagni í ballestarnar tvær. Á þessu víra loomi er eitt öryggi, á plúsnum. Þannig að þegar maður kveikir á ljósunum, með ljósarofa, opnar relay fyrir straum inn á ballestarnar.
Ef til vill hefði verið auðveldara að tengja rafmagn beint inn á ballestarnar úr ljósabotnunum, en við vorum að spá í hvort að það myndi ekki ofhlaða kerfið.
Annars þarf ég að fá félaga minn, sem stóð í þessu með mér, til þess að mæla dótið aftur, gæti alltaf verið að ballestin sé ekki að fá rafmagn, ef það er ekki það er allt eins líklegt að ballestin sé gölluð.
