Jæja, nú er þetta komið til landsins. Þannig var nefnilega að ég keypti kittið milli jóla og nýárs en síðan kom sendingin aldrei. Þegar ég fór síðan að ræða við seljandann kom í ljós að hann var einnig með HID kit (Xenon kit) til sölu og úr varð að ég keypti einnig af honum HID, og fékk það á mjög góðu verði. Allur pakkinn kom síðan á mánudaginn með pósti.
Fyrst þegar ég sá þetta var ég mjög skeptískur(og er það enn) enda ekki um dýrt júnit að ræða, en ég hugsaði að það væri alveg þess virði að taka áhættuna.
Það fyrsta sem ég gerði var að taka framljósið úr, komplett, sem reyndist ekki mikið verk. Ljósið er fest með fjórum skrúfum, tvær að ofan og tvær að neðan, síðan þarf að losa plöggin sem halda aðalljósum, háljósum, stöðuljósum og stefnuljósum. Þegar þetta er komið kemur ljósið úr.
Þegar ljósið er komið úr þarf að brúka breitt skrúfjárn til þess að losa um spennurnar sem halda ljósinu saman, annars vegar: ytra gleri, linsum og stefnuljósi, en hins veg speglunum og botninum sem perurnar eru festar í. Lýsingu og myndir er að finna á:
Þegar þetta er síðan komið í sundur kemur að því að koma hringjunum fyrir í linsunum. Ég leysti þetta með því að tylla hringjunum í en festa þá síðan með límbyssu. Þetta taldi ég vera bæði hreinlegast, auðveldast að fjarlægja, ef illa færi, og einnig nægilega hitaþolið.
Hringirnir eru úr gleri og þess vegna verður að fara mjög varlega með þá. Þeir eru síðan tengdir í einhverskonar startara, sem síðan eru tengdir beint í stöðuljósa tengið. Við tókum þá ákvörðun að geyma startarana í ljós-húsinu sjálfu, enda líklega öruggastir þar, þeir voru festir með límbyssunni góðu.
Nú síðan var bara að klastra öllu dæminu aftur saman og setja það í bílinn, þar var dæmið tengt og kíkt á hvernig tekist hafi.
Skemmst er frá því að segja að mér finnst þetta hafa tekist betur til en ég þorði að vona, en kannski bjóst ég ekki við miklu. Hringirnir eru virkilega bjartir og afmarkaðir og nú sér maður hvað Halogen lýsingin er í raun og veru gul þrátt fyrir "bláar perur". Næst er svo að setja Xenon kittið í, það verður gert á næstu kvöldum, vona ég. Ég læt mynd fylgja með af ljósunum eins og þau eru núna, mér finnst myndin samt ekki sýna hringina eins afmarkaða og þeir eru í raun og veru. Þetta eru auðvitað ekki facelift ljós en mér finnst þetta samt virka betur en ljósin voru.
Endilega látið skoðanir ykkar í ljós á þessu.
Kveðja
Þórir I.
