Við mína vinnu, þá fer ég alltaf reglulega á einn ákveðinn stað í Reykjavík.. og þangað fer ég um miðjar nætur. En það sem málið snýst um er að ávallt þegar ég kom á þennan ákveðna stað.. þá rak ég augun í E30 framenda og svo sá ég glimta í það að toppurinn væri eitthvað öðruvísi en venjulega. Svo loksins um helgina hafði ég tíma til að stoppa og kíkja almennilega á gripinn. Og viti menn.. hafði ég þá ekki bara rekist á eitt stykki E30 BAUR bíl í heldur döpru standi. Hann er svona dökk-dökkgrænn og sjúskaður. Veit einhver betur deili á þessum bíl og jafnvel hver eigandi er og hvort hann sé falur og svo framvegis? Þessir eru nefnilega "nettljótir" og fágætir hér á landi allavega, svo gaman gæti verið að eiga einn svona




