En rosalega eru þessir bílar skv. mínum heimildum að skila miklu afli niður í framhjólin. (Hef séð menn á netinu fara lágar 13 í Stage 1 breyttum bílum)
Er þetta eitthvað að "höndla" allt þetta afl? Ég bara svona spyr ef einhver skyldi vita svarið
StoneHead wrote:Jæja piltar.
Jú, þetta var bróðir minn sem keyrði þarna útaf.
Eins og kom framm hérna ofar að þá er þetta mjög aflíðandi beygja, þetta var algjör klaufaskapur.
Þeir voru á leiðinni í skólann, nývaknaðir og bíllinn flaut uppúr rásunum. Eftir það er ekki að spyrja að leikslokum. Dekkin á bílnum voru gott sem slétt, mikil bleyta og ekið of hratt miðað við aðstæður.
En hinsvegar að þá sá bróðir minn það eftir að hafa keyrt útaf að ABS-ið virkaði 0.
Sem betur fer eru þeir báðir nokkuð heilir sem voru í bifreiðinni og það er fyrir öllu, það kemur bíll eftir þennan.
Bróðir minn er klaufi en ekki pappakassi, það er munur þar á milli.
IceDev wrote:Ég ek eins og fáviti oft, en aldrei þannig að ég legg aðra bíla í hættu
Geirinn wrote:Þetta er ekkert alltaf spurning um það. Ýmsustu hlutir geta farið úrskeiðis... hlutir sem maður hefur oft gert áður líka.
Þegar slys eru annars vegar þá á maður ekki að vera með neinn skít heldur bara að hugsa sinn eiginn gang.
Þetta er að sjálfsögðu mín skoðun.
adler wrote:Vita menn um einhvern usa bíl sem höndlar eins og evrópu bílar,það er ekki nóg að bílarnir sem kaninn er að framleiða líti út fyrir að vera einhverjar græjur þeir verða alltaf eftirlíkingar af því sem kemur frá evrópu,þá á ég við bíla sem eru framleiddir til hrað aksturs.
En svo er það með suma að bílarnir verða aldrei nógu góðir,sérstaklega ef að viðkomandi er klaufi og kannski ekki með reynslu til að höndla kraft.

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests