Sælir félagar, ég var að spá í hvort við ættum ekki að gera þennan klúbb að alvöru BMW klúbb Íslands. Mörg lönd hafa official BMW klúbba, kíkið t.d. á http://www.bmwcca.org og skoðið undir links. BMW Club Europa, http://www.bmw-club-europa.org er eins konar miðstöð Evrópu og er hægt að skrá okkur hjá þeim og taka þátt í samstarfi klúbbanna um allan heim.
Eins og t.d. með ferð til Þýskalands næsta sumar með Norrænu þá gætum við haft samband við klúbbinn í Þýskalandi og hitt þá og þeir gætu hjálpað okkur að skipuleggja ferð.
Einnig gætum við haft samband við B&L og haft eitthvað samstarf við þá, kannski reddað einhverjum afslætti fyrir meðlimi klúbbsins. Þessar samkomur hjá okkur, sérstaklega ef blöð fara að fjalla um þær, eru góð auglýsing fyrir BMW og þar af leiðandi B&L.
Ég hef ekkert skoðað þetta nánar en þetta var bara svona pæling. Hvað segið þið?


