Sælir.
Ég er með vandamál varðandi lásinn á bílstjórahurðinni hjá mér.
Þarf alltaf að læsa sjálfur með því að fara inn um farþegahurðina hjá mér.. þangað til þetta hrökk allt í einu í gang og virkaði að læsa með lykli um daginn en er bilað aftur núna. Semsagt, bíllinn læsir sér ekki alltaf með lykli en það virkar alltaf að opna hann.
Var að lesa núna FAQ sem mér sýnist vera möguleg lausn á vandamálinu:
http://www.unofficialbmw.com/e30/interior/door_locks/e30_central_lock_faq.html
BMW has something called "Door Lock w/key repair kit" or something like that, BMW part number 51211924903 or maybe 51-21-9-061-343. Both have been reported as correct so who knows? Anyway, it should cost around $30 (us) from a dealer. It comes with a new lock cylinder, and all possible tumbler combinations so you can key it to your existing key. I have included the translated german instructions at the end of the FAQ.
Sem bendir á þessa síðu hér þegar ég leita að þessum varahlutum í RealOEM:
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=1111&mospid=47263&btnr=41_0560&hg=41&fg=40&hl=19.
Sem sagt, það sem highlightast í leitinni er þetta hér:
09 CATCH WITH KEY LEFT 1 51211924903 $93.74
Ég prófaði að rífa hurðarspjaldið af um daginn og mér sýnist við fyrstu sýn að það sé alveg hundleiðinlegt að komast að þessu öllu saman.
Ef ég reyni að læsa hurðinni þegar hún er opin og ætla svo að skella þá virðist hún vera orðinn það læst að hún lokist ekki nema maður taki pinnann aftur upp. Svo virðist pinninn líka vera dáldið skakkur eða beyglaður.
Þegar maður stingur lyklinum í og snýr eins og maður ætli að læsa þá gerist ekki neitt (nema í þessi örfáu skipti sem það hefur virkað).
Eins virkar stundum samlæsingin, þ.e. ef ég læsi sjálfur í gegnum farþegahurðina þá læsast stundum báðar hurðirnar saman en í þessi skipti sem lykillinn hefur virkað þá hefur bæði alltaf læsts.
Svo ég spyr: Er lausnin að fá eitthvað BMW repair-kit fyrir þetta eða haldiði að það sé nóg að fara með þetta til lásasmiðs eða jafnvel á verkstæði eða get ég gert þetta sjálfur ?
Þegar ég komst í svona umræðu hérna um daginn þá virtust fleiri hafa lent í því sama.. hefur einhver náð að laga þetta hjá sér eða eru allir með þetta vandamál ennþá ?
Einhvernveginn held ég að þetta endi á verkstæði
