Bíddu bíddu ég held að það sé í lögum að ef maður kemur að slysi ber manni skylda að stoppa og athuga hvort allir séu heilir og veita fyrstu hjálp ef þess þarf.
Það er hægt að kæra þessa konu og gæti verið að löggan geri það.

trapt wrote:Ég hef aldrei verið stoppaður á bílnum mínum en alltaf þegar ég hef farið
eitthvað á corollunni hennar mömmu þá klikkar ekki að maður sé tekinn i
check. Mér er svosem sama því ég hef ekkert að fela. Auk þess eru þessar
löggur bara að vinna vinnuna sína og allt í góðu með það. Finnst svo skrýtið
þegar pappakassar eru að neita löggunni um leit í bílnum sínum og eru með
einhvern óþarfa mótþróa.

Twincam wrote:Mér dettur ekki í hug að leifa lögreglunni að framkvæma leit í mínum bíl ef hann er á, eða við, götu þar sem mikil umferð er... því hvað heldur fólk þegar það sér bíl stopp og lögguna að gramsa í honum??
"Helvítis fíkniefnaaumingjar" er það sem fyrst kemur upp í hausinn á fólki.. og þegar maður er á svona auðþekkjanlegum bíl eins og mínum, þá kæri ég mig bara nákvæmlega EKKERT um að fólk sjái lögregluna framkvæma leit og hugsi þetta um mig. Því ég hef aldrei neitt að fela fyrir lögreglunni í mínum bíl.. en þetta er bara spurning um að fá ekki "slæmt orð" á sig fyrir ekki neitt.


gstuning wrote:Twincam wrote:Mér dettur ekki í hug að leifa lögreglunni að framkvæma leit í mínum bíl ef hann er á, eða við, götu þar sem mikil umferð er... því hvað heldur fólk þegar það sér bíl stopp og lögguna að gramsa í honum??
"Helvítis fíkniefnaaumingjar" er það sem fyrst kemur upp í hausinn á fólki.. og þegar maður er á svona auðþekkjanlegum bíl eins og mínum, þá kæri ég mig bara nákvæmlega EKKERT um að fólk sjái lögregluna framkvæma leit og hugsi þetta um mig. Því ég hef aldrei neitt að fela fyrir lögreglunni í mínum bíl.. en þetta er bara spurning um að fá ekki "slæmt orð" á sig fyrir ekki neitt.
Ertu svona smeykur um hvað fólk hugsar um þig??

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests