bjahja wrote:En Gunni, til hvers er bmwkraftur ef það er ekki til þess að spurja spurninga og fá svör? Hvort sem það er beint frá einhverjum eða linkur sem einhver hefur fundið áður og getur bent öðrum á?
Það eru ekki allir jafn duglegir og við hérna og hefur ekki lesið hvern einasta þráð frá upphafi, nýjir meðlimir td hafa líklega bara lesið nýjustu þræðina.
En eins og ég sagði, þá finnst mér ekkert að því að benda fólki á að leita hérna á síðunni ef sama umræða hefur átt sér stað áður!
Síðan er enginn að ætlast til þess að spurningum sé svarað, ég held að allavegana flestir hér vonast til þess að spurningum sé svarað.
Það sem mér finnsts persónulega best við þennan klúbb er þessi óendalega þekking menn hafa hérna, en hvað er gamanið ef fólk vill ekki deila henni? En það sem er líka gott er að það er ekki verið að skikka neinn til að deila henni, það er allt undir okkur komið að deila viskunni
Auðvitað er ekkert að spurningum, en sumt gengur bara of langt.
eins og einhver póstaði um daginn, hvaða öryggi er fyrir ljósið sem er hætt að virka hjá mér? í stað þess að labba inn og skrifa þetta á netið iog bíða eftir svari, þá hefði tekið styttri tíma að einfaldlega opna öryggja boxið og skoða öryggin þangað til að maður hefði fundið það sem var ónýtt, kannski hefði fundist annað auka sem var ónýtt sem var samt ekki að trufla notkun bílsins akkúrat þá.
En menn ættu endilega að prufa að leita á spjallinu áður en þeir spyrja , til þess er leitartakkinn,




