jens wrote:
Skynsamlegar spurningar, reyni að svara eftir bestu vitund.
1. Ætla að eiga bílinn " for ever ".
2. Hlít að hafa efni og það kemur að því að það þurfi að taka vélina upp, en tími það er verra.
3. Veit ekki langar að vera á bilinu 160 til 210 hp ( ekki heilög tala ).
4. Langar að vera með M42 í 318is, bara svona orginal í mér, samt er s14 sú vél sem myndi uppfylla þessa drauma mína.
Spurning:
1. Er ekki allt annað og meira og dýrara mál að fari í turbo á þessa vél hún er svo háþrýst.
Ef þú vilt 200hö þá er lág boost turbo akkúrat málið fyrir þig,
eða S14 swap..
Turbo verkefni eru öll eins uppað ákveðnu marki,
sem er að .
Þú þarft túrbógrein á vélina
Þú þarft rétta túrbínu á vélina
Þú þarft svo púst aftann á hana
Þú þarft plumbing frá túrbo yfir í intercooler
Þú þarft intercooler
Þú þarft plumbing frá intercooler í loftflæðimæli
Þú þarft að vita olíuhita og þrýsting
þú þarft að vita boost
Þú þarft að geta stillt kveikju og bensin,
þú þart að vita mixtúru og helst púst hita.
Þú þarft að koma olíuþrýsting í turbínuna og tilbaka í vélina.
Þetta þarf á alla bíla sem eiga að vera turbo,
Þetta er allt hægt að gera í stigum en þarf að plana fyrirfram uppá hversu mikið power á að gera,
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
