KRRRÆÆÆÆÆSSSSST !!!!!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

KRRRÆÆÆÆÆSSSSST !!!!!

Postby Heizzi » Fri 02. May 2003 23:02

Hafið þið skipt um hliðarrúðu frammí í E36. ÞAÐ ER MAJOR PAIN :twisted:, þ.e.a.s. ef maður kann það ekki.

Klukkan hálf sjö í dag fór ég og ætlaði að skella rúðunni í hjá mér, ég var fyrst að koma heim núna um 10 leytið :!:

Fyrst þurfti að hreinsa glerbrotin úr þéttilistunum, síðan þurfti að átta sig á hvernig best væri að smeygja henni ofan í hurðina, tók smá tíma (skíthræddur um að brjóta þetta,13.000 kall plús vikubiðtími eftir nýrri). OK, kem henni ofan í, festi hana í stýriarmana og prófa, nei þá hrekkur hún úr festingunum, nýju stykkin pössuðu eitthvað verr heldur en þau gömlu. Set gömlu aftur í í og prófa, NEI þá er hún laflaus og dettur alltaf fram fyrir sig... hún fór ekki almennilega inn í fölsin :roll:

Jæja svo loksins gekk þetta og ég varð alveg himinlifandi :D


Og eitt annað, gírhnúðurinn er orðinn svolítið slitinn hjá mér, smá laus, svona wear and tear... allavega þá fer ég upp í umboð í dag og tékka svona til gamans hvað nýr svona kostar... 9000 kall takk, fyrir einn skitinn gírhnúð :lol:
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby bjahja » Fri 02. May 2003 23:06

jæja, það er allavegana gott að þetta er komið í lag.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Heizzi » Fri 02. May 2003 23:16

Já, þetta er eins og nýr bíll fyrir mér að sitja í. Ég er ekki búinn að eiga hann nema í tvo daga þegar brotist er inn í hann þannig að ég er búinn að keyra með þetta helvítis plast í hurðinni í hálfan mánuð og þekki lítið annað en bölvuð óhljóðin í því og hávaðann af götunni.
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby Gunni » Sat 03. May 2003 14:56

Heizzi wrote:Já, þetta er eins og nýr bíll fyrir mér að sitja í. Ég er ekki búinn að eiga hann nema í tvo daga þegar brotist er inn í hann þannig að ég er búinn að keyra með þetta helvítis plast í hurðinni í hálfan mánuð og þekki lítið annað en bölvuð óhljóðin í því og hávaðann af götunni.


HEHE ég held ég hafi séð þig í gær, mér fannst þetta nú soldið smellið að sjá þig keyra með plastpoka fyrir einum glugganum :lol: samt náttlega leiðinlegt að það hafi verið brotist inní bílinn þinn!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Heizzi » Sat 03. May 2003 17:43

Smellið :lol: Já kannski, en ég var meira hugsa svona djö!!.... andks,.... helv..... læti eru þetta :!: :lol:
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests