Úff, ég veit ekki hvar ég á að byrja.......
Var rosalegur á corollunni (87´ árg. DX 1.3 rauð tveggja dyra, með RISA "skókassa" húddskóp(svart), augabrúnir og tvöfaldan remus stút

ef að einhver skyldi kannast við greyið, sem að nú er dautt

RIP)
Var einu sinni að rúnta með vinkonu minni (nýkominn með teinið) og fór svo fyrir aftan Domus Medica að pissa, á meðan skoða ég fyrir aftan bílinn og tek eftir því að enginn bíll er nálægur þannig að ég sest inní bíl og bakka á fullu án þess að horfa (mjög töff

) og enda á endurvinnslugámi
En tveir viðburðir fengu hjartað til að stöðvast og ég mun aldrei gleyma!
nr1. Var að verða of seinn í vinnuna (ég bý í rvk og vann í hfj) eftir að hafa orðið bensínlaus á gatnamótum í góðan tíma

það var mikill snjór úti og ég hálfvitast til að keyra á svona 90-100km/klst á leiðinni, nema hvað að þegar að ég kem að rampinum og brúnni inní kópavog/garðabæ (brúin fjær rvk) að þá er ég á vinstri akrein og lít í baksýnisspegilinn til að virða fyrir mér 2 nýja cherokee fyrir aftan mig að þá missi ég vinstri hjólin útaf og ætla að beygja þeim aftur inná veginn að þá snérist ég í 540° og endaði á miðjum rampinum (hafði verið á vinstri akrein notabene) og er öfugur, sem sagt snéri móti umferðinni og sé cherokee-ana snarnegla niður, ég anda djúpt og gef svo stefnuljós til hægri, keyri niður rampinn (móti umferðarstefnu) og beygi svo rétt inná og held áfram.....
nr2: Var að keyra Hvaleyrarbrautina (minnir að gatan heiti það, er það ekki svona iðnaðarhverfi?) í hfj og hafði milljón sinnum keyrt þarna á kvöldin og ALDREI nein umferð, er svo þarna í einu hádeginu og mikill snjór úti ég er á svona 50-60 en mælirinn sagði 100+ vegna þess að ég var að spóla, svo kemur svona brekka niður hjá krónunni og gatnamót og mér til mikillar undrunar er röð að gatnamótunum sem að ég hafði ekki tekið í reikninginn þannig að ég byrja að bremsa og gíra niður en allt fyrir ekkert, bíllinn hægði 0 á sér

svo þegar að það voru svona 3-4m í aftasta bílinn að þá loka ég augunum og rykki stýrinu til hægri og bomba uppá kannt og sprengi bæði framdekkin og beygla báðar felgurnar með denn samme! renn svo framúr allri röðinni á gangstéttinni

og stöðvaðist 60 cm frá staur!
Hef aldrei verið jafn hræddur og þá
þetta er nú bara brot af því besta, ég gæti skrifað bók um ævintýri mín og "Turbó" (corollan)

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,