Það fór í hann M52B25, og ég hef sjaldan gert auðveldara swap enda kláraðist það bókstaflega á einu kvöldi...
Það er fernt sem að þarf að laga, og þá er bíllinn 100%
Hleðsluljósið logir stöðugt (þó hleður alternatorinn fullkomlega!)
Pústgreinapakkning (virðist leka falskt með henni, gæti hafa klúðrað herslunni)
Leiðinda brak í gríkassanum (Sem að ég veit ekki afhverju stafar en gírkassinn vinnur fullkomlega og þetta brak kemur bara þegar að kúplingin er að tengja og þetta er ekki synchrome brak)
Vökvastýris-slangan lekur stýrisvökva (Búið að skítmixa þetta í eitthvað drasl, ekki mín vinnubrögð samt!)
Svo varð ég fyrir því ólukkulega þegar að GStuning var að meta hvað þetta gírkassabrak væri að hann keyrði í holu og eitt stykki Rondell er kengboginn, en bærinn á að borga þetta, ég á bara að fara með felguna upp á skrifstofu, að allra sögn!
En þá er þetta allavega fín skýring á því hvernig bíllinn stendur í dag
