Jæja ég var að setja í bílinn nýjar Alpine græjur og gerði það sjálfur. En svo kom upp vandamál.

Útvarpið virkaði vel í fyrstu en ekkert hljóð kom úr geislaspilaranum. Ok þar sem ég var ekkert mikið að flýta mér í að koma þessu í lag þá beið ég með það. Svo fór þetta að versna. Útvarpið byrjaði að flökkta og fór hljóðið í útvarpinu að taka bylgju sveiflur í volume þangað til það datt alveg út.
Það er ennþá rafmagn á tækinu og finnur útvarpstöðvarnar og spilarinn spilar diskana, prófaði mp3 disk og hann sýnir alveg hljómsveitina og lagið.
Fer á morgun í Nes-radio að tékka á þessu. Langar bara að vita hvort einhver hefur lent í þessu áður?
