í gær sá ég að B&L var að auglísa reynsluakstursbílana sína til sölu, í blaðinu stóð reyndar að þetta væru 3 línu bílar en þegar ég kom á staðin var þetta prentvilla og það var ásin sem var um að ræða.. bíllin sem þeir voru með var 118i sjálfskiptur.. upprunalega verðið átti að vera 2990 en hann var á tilboði 2590, ég varð reyndar hálf hissa á því hversu gífurlega hrár bíllin var og og ég gat ekki séð annan aukabúnað heldur en sjálfskiptinguna.. en allavega ég skellti mér í reynsluakstur og ég verð að segja að ásin kom mér skemmtilega á óvart.. það skína alveg í gegn bmw genin og ég kannaðist strax við mig undir stýri þótt ég hafði aldrei keyrt sona bíl.. ég fann reyndar aldrei takka til að taka spólvörnina af sem mér fannst ókostur.. en hvað varðar að keyra bílin var ég bara sáttur.. ég forvitnaðist líka um kjör og kaup en þeim B&L mönnum fannst mazdan of dýr bíll uppí nema ég færi í dýrari ás eða þrist..
ég verð nú að segja að mér finnst aukabúnaðurinn í þessum bílum furðulega hár... en þeir bílar sem ég skoðaði voru langt yfir grunnverðunum en í sumum þeirra gat ég ekki séð nema brot af einhverju sem útskýrði verðmunin..
ég hefði gaman af að sjá hvernig aukabúnaðarlaus ás er.. þar sem ég gæti alveg ýmindað mér að skella mér á einn 120d 6 gíra.. en grunnverðið á honum er eitthvað sem ég treysti mér alveg í..
bara gaman að keyra sona lítin bíl með afturdrifi fannst mér.. og það er eitthvað sem mér finnst bara heillandi við að keyra GLÆnýjan bmw
einnig mátaði ég mig vel í nýja þristinum sem mér finnst gífurlega flottur og þægilegur.. finnst dáldið flatt í honum mælaborðið þegar skjárin er ekki í því.. en eftir þessa skoðunarferð hlakkar mig ennþá meira til þess dags sem ég kaupi E65, sem er á framtíðarplaninu
