Smá öppdeit.
Ískrið kom aftur og það vel, var alveg að gera mig vitlausan. Ég tók allt dæmið í sundur og smurði aftur, vel og rækilega og við það hætti ískrið. . . . . . í tvær vikur en byrjaði bara aftur. Þetta er hreinlega að gera mig vitlausan
Ég fór síðan og ætlaði að kaupa aðra klossa í að framan en þá beinti sölumaðurinn mér á að kaupa svona "ál fólíu" setja hana milli dælu og klossa og þá myndi þetta steinþagna.
Áður en mér tókst að gera það, átti ég leið upp í TB og þar sá ég Febi klossa sem koma orginal með svona plötu aftan á klossanum, svo að ég keypti þá bara. ÉG trúi nefnilega ekki á að spara í bremsum eða til að losna við leiðinleg aukahljóð sem gera ekkert nema gera mann pirraðan.
Að vísu eru Febi klossarnir tvöfallt dýrari en mér finnst líklegt að þeir séu þess virði, ég vona það að minnsta kosti. Ég skelli þessu allavegana í um helgina og læt ykkur vita.
Læt fylgja mynd af Febi klossunum, þar sést þessi þynna sem skilur að klossa og dælu og þaggar í honum.
Kveðja
Þórir I.
