Jæja það hefur ekkert mikið gerst hjá mér síðan bílinn fór á númer, hef verið að glíma við leka á kælikerfi og virðist vera kominn fyrir hann. Fór með bílinn í skoðun, skipta þarf um spindilkúlur og stýrisenda.
Hef verið að safna að mér hlutum í bílinn og er kominn með 60/60 lækkunargorma og kastarana sem koma í svuntuna en svuntan er enn ekki kominn, lenti í vandræðum með 15" felgurnar svo hann er bara á orginal 14" felgunum sem voru costom'aðar í snatri til að bjarga look'inu.
Ég er nú kominn með smá reynslu af þessari M42 vél og verð ég að segja að þetta er ótrúlega mikið leiktæki, togar mjög vel á lágum snúning en er með fínan kraft alveg upp. Það er verið að vinna í því að fá ( kraft ) kubb í bílinn og eftir það er ekki margt sem hækt er að gera í tunning nema fara út í stærri hluti, ( er með 2.5" opið púst, flækjur og KN síu) hef reyndar lesið um það að snúa megi knastásnum í þessum vélum sem gefa einhver hestöfl en er ekki nógu klár í þessu. Gaman ef einhver getur frætt mig um þetta.
Læt nokkrar myndir fylgja með.

_________________

E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter