Óska eftir BMW 540 (Sjálfskiptum E39)

Hér getur þú auglýst eftir BMW bílum.

Óska eftir BMW 540 (Sjálfskiptum E39)

Postby Riddarinn » Wed 07. Sep 2005 21:36

Er með BMW 750 IL árgerð "93 og kr. 400.000 í peningum. (Yfirtaka á láni eða eftirstöðvar, samningsatriði)
.
BMW 750 IL árgerð "93 ekin 220 þús.

Vél: 12 cyl. 300 hö.

Litur: Demant-svart-sanseraður

ABS og ASR spólvörn
Rafmagn: í sætum (frammí og afturí), í rúðum, speglum og hurðum.
Topplúga, leður, M5 sæti m/minni, M5 álfelgur djúpar 17 tommu.

Nýlegt viðhald:

Nýr vatnskassi, vatnslás, vatnskerfi yfirfarið. Allir bremsudiskar nýir, bremsukerfi allt ný yfirfarið og skipt um slithluti. Ný drifskaftsupphengja, mótorpúðar. Allur hjóla og stýrisbúnaður ný yfirfarinn og skipt um slithluti.

Alveg skotheldur bíll..!..

uppl. reynir777@internet.is sími 66 34 000 og 5 17 76 10

Myndir eru á leiðinni
Last edited by Riddarinn on Fri 09. Sep 2005 10:05, edited 2 times in total.
BMW er bíllinn, þú skalt ekki aðra bíla eiga
User avatar
Riddarinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 4
Joined: Tue 06. Sep 2005 17:04
Location: 101

Postby basten » Fri 09. Sep 2005 09:11

Ég vil ekki vera leiðinlegur en mér þykir mjög ólíklegt að einhver E39 540 eigandi sé til í að láta bílinn sinn í svona skipti-díl.

Ekki misskilja mig, mér finnst E32 ofboðslega fallegt boddí, en ef við setjum þetta saman þá ert þú að reikna þinn bíl á 990 þús samkvæmt aulýsingu hérna annarsstaðar á síðunni (sem er algjört toppverð fyrir E32) og borgar 400 í peningum. Þannig að þú ert að reyna að fá E39 540 bíl fyrir 1390 þús (sem er algjört botnverð fyrir E39 540).

Bara svona pæling, engin leiðindi :wink:
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Riddarinn » Fri 09. Sep 2005 10:00

Herra basten, Þetta er mjög góður punktur hjá þér, tökum þessu alls ekki illa og þakka þér fyrir. Ástæðan fyrir þessu er að við erum eiginlega ekki alveg búnir með auglýsinguna.
.
Málið er að sonur minn á þessa bifreið og langar til að skipta honum upp. Við feðgarnir erum að púsla þessu saman, eigum það sameiginlegt að vera miklir BMW aðdáendur.
.
Hann er ekki alveg með á hreinu hvort hann vill, 323, 325, 520 eða 540 bíl og við erum í rauninni tilbúnir að skoða ýmislegt.
.
Það sem vantar þarna í auglýsinguna er að hann sé hugsanlega tilbúin að yfirtaka allt að kr. 400.000 bílalán eða borga eftirstöðvar með öðrum hætti.
.
Við lögum þetta. þakka ábendinguna.
BMW er bíllinn, þú skalt ekki aðra bíla eiga
User avatar
Riddarinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 4
Joined: Tue 06. Sep 2005 17:04
Location: 101

Postby saemi » Fri 09. Sep 2005 11:01

Þá meikar þetta meiri sens, því ég er svo sammála Basten með það sem hann var að segja varðandi 540 E39.

En að yfirtaka er bara eitthvað sem er að virka í dag, þá getur þetta vel virkað.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik


Return to Vil kaupa - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests