by srr » Sun 04. Sep 2005 01:27
Möguleikar bílasala til að selja bíla tel ég vera þessa helsta:
1. Bíll stendur á plani hjá þeim
2. Bíll er á söluskrá hjá bílasölunni og þ.a.l. á bilasolur.is
3. Bílasala auglýsir með mynd í fréttablaði/dv/mbl
4. Kaupandi kemur með ósk að bíl og bílasali finnur bíl fyrir kúnnann. Annaðhvort kemur bíll sem passar við óskirnar í sölu hjá viðkomandi sölu eða bílasalinn skiptir við aðra bilasölu.
Svo eru þeir að bæta inn 5. liðnum, þeas að nota spjallborð eins og BMWkraft (áður en það var lokað fyrir), L2C, Stjarna.is o.fl., til að leggja inn auglýsingar með myndum og upplýsingum.
Ég skil ekki eitt. Þeir eru tilbúnir að leggja út peninga fyrir auglýsingu í blöðunum en þeir heimta hérna fría auglýsingu. Og svo þegar það er lokað fyrir það þá telja þeir það ósanngjarnt. Einn orðaði það svo: "Myndu þið ekki vilja að bílasalinn ykkar myndi auglýsa bílinn ykkar á sem flestum stöðum, til að hann seldist sem fyrst?"
Mótsvar mitt er: Af hverju átt þú bílasali góður að sleppa við að borga auglýsingakostnað en samt heimtaru jafn há sölulaun ?
Þetta er ósvífni finnst mér af hálfu bílasala að reyna að troða inn auglýsingum á hina og þessa vefi ókeypis, einungis til þess að sleppa við að auglýsa í blöðum, líkt og hinir íslendingar þurfa að gera.
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d