Upphækkun í BMW?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Upphækkun í BMW?

Postby Addi » Tue 09. Aug 2005 16:13

Veit einhver til þess að nýjir Bimmar séu stundum hækkaðir upp hjá B&L??? Málið er að ég fékk mér E46 í sumar, og mér sýnist eins og það sé 1-1,5 tommu upphækkun við festingarnar á dempurunum. Maður hefur heyrt að menn séu að hækka fólksbíla lítilega þannig að þeir séu betri í vetrarakstri (sem er algjört rugl að mínu mati). Kannast einhver við þetta? Það er nebblea mjög freistandi að kippa þessu í burtu og lækka bílinn aðeins.
Addi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Tue 09. Aug 2005 15:53

Postby fart » Tue 09. Aug 2005 17:42

Ég hækkaði einu sinni upp E36 Coupe með svona klossum. Hann var svo svakalega slammaður og erfitt að fá nýja gorma.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby grettir » Tue 09. Aug 2005 18:11

Ljótt ef satt er :-s
Ekki eins og maður sé að versla sér svona bíla vegna eiginleika í vetrarfærð. Þeir mega auðvitað ekki vera alveg í götunni, en frekar fáránlegt að setja þetta í án þess að spyrja verðandi kaupanda.

Annars fíla ég ágætlega þessi "snjóþotu syndrome" sem maður fær af lækkuninni :)
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Upphækkun í BMW?

Postby Gunni » Tue 09. Aug 2005 20:28

Addi wrote:Veit einhver til þess að nýjir Bimmar séu stundum hækkaðir upp hjá B&L??? Málið er að ég fékk mér E46 í sumar, og mér sýnist eins og það sé 1-1,5 tommu upphækkun við festingarnar á dempurunum. Maður hefur heyrt að menn séu að hækka fólksbíla lítilega þannig að þeir séu betri í vetrarakstri (sem er algjört rugl að mínu mati). Kannast einhver við þetta? Það er nebblea mjög freistandi að kippa þessu í burtu og lækka bílinn aðeins.


Ég tók eftir þessu á E46 sem komst í eigu fjölskyldu minnar nú fyrr í
sumar. Mér sýndist þetta vera einmitt upphækkun, svipað og fólk treður
í Golfa í tíma og ótíma. Ég ætla einmitt að láta rífa þetta úr, svo þarf
trúlega að hjólastilla á eftir.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Addi » Wed 10. Aug 2005 12:15

Ég held að ég láti bara vaða og rífi þetta úr. Ég tek myndir af "aðgerðinni" og set á þráðinn ef einhver annar er að pæla í þessu, líka gaman að sjá muninn fyrir og eftir.
Addi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Tue 09. Aug 2005 15:53


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests

cron