Jæja.
Þá er veturinn nánast skollinn á með tilheyrandi leiðindum. Þá neyðist maður víst til að fá sér skóbúnað við hæfi en hjá mér urðu fyrir valinu ónegld vetrardekk að gerðinni Winterforce frá Bridgestone. Dekk sem hægt er að fá á mjög góðu verði en fá samt sem áður mjög góða dóma. Þar sem ég er soldið pikkí með að hafa bílinn á sér vetrarfelgum geri ég það og buðust mér nýjar 16" felgur á mjög góðu verði og eru þær komnar undir.
Sitt sýnist hverjum, ég er ekki alveg búinn að taka hann í sátt á þessum felgum en ég ætla að gefa þessu smá tíma. Þetta er svolítið öðruvísi en maður á að venjast.
Dekkin eru alveg hörku vetrardekk, enda vildi ég fá alvöru vetrardekk enda verð ég með sérstakan sumardekkja gang.
Læt flakka nokkrar myndir.
Kveðja
Þórir I.
