Það er nú samt talað um að háþrýstidæla sé ekki góð á vélar, þá smýgur vatn frekar inn á óvelkomna staði.
Frekar eins og Gunnar segir með að hylja með cellofan eða jafnvel álpappír (auðveldara að móta hann) og svo frekar bursta létt þar sem þarf eftir að tjöruhreinsirinn er kominn á og nota bara létta bunu, garðúðara eða slíkt til að skola burt.
Annars þreif ég mína bara með höndunum um daginn, notaði bara lítinn svamp léttvættan í sápuvatni og svo bón á eða vínilspray eftir það. En það er auðvitað meira vesen. Ég var bara að baksa í rúðuvökvatankinum að þétta smá leka svo ég var hvort eð er að hanga yfir húddinu og bíða eftir að dropaði úr viðgerðinni.
Þetta kom nokkuð vel út:
