Keyrði þarna framhjá áðan. Nýr GTi golf sem klessti á jeppa og mér sýndist dekkið hafa dottið af jeppanum. Sá hann á kviðnum á umferðareyju. GTi golfinn er vel hellaður!
visir.is wrote:Fólksbíll endaði inni í garði húseiganda í Kópavogi rétt upp úr hádegi eftir að hafa keyrt aftan á jeppabifreið á ofsahraða. Ökumaður fólksbílsins slasaðist og var fluttur á slysadeild en meiðsl hans voru talin minniháttar. Þrír voru í jeppanum og sluppu þeir ómeiddir. Atvikið átti sér stað við brúna í Hamraborg í Kópavogi og segir eigandi garðsins að annar bíll hafi endað inni í garðinum hjá honum fyrir aðeins um mánuði síðan.

