Neibb... Hann hefur aldrei verið í eigu tryggingafélags. Hann var fluttur inn af syni hans Guðmundar í B&L (Gísli heitir hann) og seldur þaðan í 96 þús. Ég keypti hann í 112 þús. Hann er ótjónaður og brennir ekki mikilli olíu, bara eins og eðlilegt er fyrir M5.
Ég myndi heldur ekki ætlast til þess að fá þetta verð ef hann væri ekki topp eintak
Það eru þrír eigendur á undan mér hér heima og tveir þeirra voru félagar. Hann var ekinn 10 þús hjá hvorum þeirra og það bara í sumarkeyrslu.
Ég hafði reyndar hugsað mér að lækka hann örlítið í verði því það þarf að skipta um pakkningu eða þéttingu í pústkerfinu og svo fer að verað kominn tími á kúplinguna (innan við 20 þús eftir af henni).
Hvað gerðist með 318IA bílinn? Hvaða árgerð var þetta?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road