Sælir/sælar.
Ég vill taka það fram að ég er nýr notandi spjallsins en hef mikinn áhuga á BMW.
Ég er í hugleiðingum að flytja inn BMW, frá þýskalandi helst. En ég vill spyrja ykkur um nokkrar spurningar áður en það gerist, ég er viss um að ég fæ góða hjálp.
BMW'arnir sem ég er að pæla í að fá mér er 325i beinskiptur. Ég er mikill áhugamaður E-30, en get allveg hugsað mér að kaupa E-36. Ég myndi vilja helst dökkan lit, svartan, dökkrauðan, dökkbláann eða eitthvað í svoleðis litum. Auk þess er ég að spá í bíl sem er með lækkunargormum, 40mm helst, kannski einhverju sportlegu útliti. Auk þess vill ég að bílinn sé ekki ekinn mikið meira en 200.000 km.
Þar sem E-30 bílum fer fækkandi veit ég að ég get ekki komið með svona skilyrði fyrir þá bíla, en hvað er verið að tala í verði ríflega, úti í Þýskalandi?
Ef ég fæ mér E-30 bíl, 88', 89' eða 90' módel? Verðdæmi með lækkunargormum (sport-fjöðrun) og sportlegu útliti (Þó ekki nauðsynlegt)
Hvað þarf að gera fljótlega fyrir þessa bíla þegar þeir eru á milli 150.000-200.000km? Og hvað mun það kosta, ríflega.
Viðhald við þessa bíla, er það mikið? Ég veit að olíupannan er á lágum punkti en það ætti ekki að vera svo dýrt að skipta um hana og ég býst ekki við að hún fari á hverju ári.
Hvaða módel hentar best? Hvað er betra en annað?
Sömu spurninga vill ég spyrja um E-36 útlitið.
---
Ég veit takmarkað mikið um bíla, þessvegna er ég að spyrjast fyrir hérna á þessum korki. Kannski er algjör þvæla í mér að vera fá mér svona gamla bíla ef ég hef ekki mikið vit á þeim? Eða kannski er algjör þvæla að vera setja svona skilyrði á svona gamla bíla. Ég veit ekki.
Ég hef verið að skoða þessa mobile.de síðu og hef fundið suma áhugaverða, en eru til einhverjar aðrar síður, blöð eða menn sem þekkja vel á markaðinn í Þýskalandi?
Hvernig er svo staðið að því að flytja inn bíl? Væri hægt að tala við einhvern Íslending sem notar þennan kork um hjálp á því fyrir lítinn eða engann pening?
Er hentugra að kaupa bíl úti en að bíða eftir einhverju góðu eintaki hérna á íslandi? Hvaða reynslu hafa menn á því?
Ég er ekki að fara í bílakaup allveg strax, en ég er að draga saman kostnað við innflutning, kaup á bíl, hvað mun kosta að gera við hitt og þetta og svo almennt viðhald á svona gömlum bílum.
Ég veit ég spyr margar spurningar og kannski sumar heimskulegar.
Með fyrirfram þökk,
Stanky, eða Haukur


