Verð á 318.

Hér skal spjalla um BMW.

Verð á 318.

Postby Þórir » Sat 19. Feb 2005 19:37

Sælir.

Nú ætlaði ég að spyrja þá ykkar sem mest haf fylgst með verðum á BMW um ráð.

Félagi minn er að spá í E-36, 318, bíl 1998 módel, ekinn 124.000 km. Bíllinn er að mörgu leyti fallegur, helst ber þó að nefna að hann er leðraður og með lúgu, sem vegur soldið upp þessa litlu vél. Bíllinn virðist þá vera vel haldinn, nýskoðaður. Þá er hann á fimmtán tommur orginal álfelgum með ágætis dekkjum.

Hann fékk tilboð um bílinn á 1260, en þá væri búið að gera við smá ryðskemmd á síls sem og eitthvað smá bögg í stýri. Hvernig hljómar það í eyru kraftsfélaga? Sanngjarn prís?
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Benzari » Sat 19. Feb 2005 19:39

Nei
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Sat 19. Feb 2005 19:41

Það finnst mér allt of mikið þegar hann getur fengið aðeins eldri 328 í staðin. :?
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Sat 19. Feb 2005 19:57

Ef hann hefur áhuga á að eignast góðan BMW með 6 cyl vél getur hann það auðveldlega á þessu verðbili. Það er reyndar hæpið (man ekki eftir mörgum til sölu) að hann finnist á íslandi (m.v. svipaða árg.) en t.d. getur hann látið flytja inn.

Ef hins vegar hann vill bara 4 cyl þá mundi ég segja að verðið sé í það hæsta. Það er auðvitað m.v. það að hægt er að fá kraftmeiri bíla að utan á svipuðu verði. Ef málið er að 4 cyl eigi að eyða minnu og svona, þá munar ekki mjög miklu á þeim, en fer allt eftir akstri ;)
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Þórir » Sat 19. Feb 2005 20:15

Já. Of mikið. Mér fannst þetta í það mesta en þetta er auðvitað ´98 model. Svo fannst mér það hífa hann soldið upp, lúga, hvítt leður......

Annars er þessi félagi minn þannig týpa að hann er að leita eftir bíl sem hann getur tekið gegn yfirtöku og þessi passar í þá skilmála. Þó svo að felstir hérna, og undirritaður, myndu eflaust fara í að leita að 6 cyl. og flytja jafnvel inn rétta bílinn er hann ekki þannig týpa.

Þetta með eyðsluna er líka alveg rétt, virðust muna svakalega litlu á vélarstærðum.

Hvað þætti ykkur ásættanlegt fyrir bílinn?
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Spiderman » Sun 20. Feb 2005 13:28

Ég er kominn með hundleið á E36, ég tæki E30 eða E46 miklu frekar:!:

E46 er svo miklu fallegri og skemmtilegri bíll að mínu mati

Myndi t.d skoða þennan

http://bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&B ... _ID=294296
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby Gunni » Sun 20. Feb 2005 13:47

Spiderman wrote:Ég er kominn með hundleið á E36


:gay: þetta er skemmtilegur vinkill!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests