óska eftir e34 525i-535i

Hér getur þú auglýst eftir BMW bílum.

óska eftir e34 525i-535i

Postby zneb » Tue 08. Feb 2005 15:36

Óska eftir e34 525i fyrir 5-600þús stgr.

Verður að vera svartur, beinskiptur og 91+ módel.

Hafið samband hér eða í síma 865-9599
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby zneb » Fri 18. Feb 2005 17:44

Smá uppfærsla.

Er líka til í 530-535i e34 og má þá vera eldri en ´91.

Skoða líka eldri 525i e-34

En beinskipting og svart lakk er möst!

Og þeir meiga vera ódýrari en 5-600þús :wink:


Það væri síðan fínt ef þið gætuð látið mig vita hér ef þið sjáið svona bíla á bílasölum þar sem ég fer nánast aldrei á bílasölurúnt en kíki oft hingað :)
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby Eggert » Fri 18. Feb 2005 18:31

Afhverju reyniru ekki að falast eftir bílnum sem Schnitzerinn flutti inn?
Það sakar ekki að spurja hvort hann sé til sölu, en sá bíll var einmitt svartur, beinskiptur, tuddaður og með toppara ef ég man rétt.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby saemi » Fri 18. Feb 2005 19:10

Félagi bróður míns á þann bíl einmitt. Hann var að auglýsa eftir rúðu hérna um daginn. En sá bíll er dýrari en 600 þús.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby zneb » Fri 18. Feb 2005 19:15

Hann var mikil pæling á sínum tíma en aðeins of dýr þá.

Semsagt þessi:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7173

Væri vel til í að skoða hann núna en heyrði samt að núverandi eigandi hefði slædað á kant fljótlega eftir að hann fékk bílinn og tjónað felguna allverulega en samt keyrt á henni í góðan tíma laskaðri :?

Bíllinn átti semsagt að hafa fengið frekar slæmt orð á sig og fáir sem vilji því kaupa hann í kjölfarið er mér sagt. Síðan virtist eigandinn ekkert geta sagt um hvort það væri e-ð til að staðfesta þessa km-tölu (eigendaferill, þjónustubók eða e-ð þess háttar).

Er samt til í að skoða þann bíl.

Held að ég hafi reyndar séð hann um daginn (allavega var sá með svona afturljós) og þá sýndist mér hann vera á koppum.

En já, ef einhver þekkir til þanns sem á bílinn eða einhvers sem á bíl sem fellur undir þá sem ég er að leita að, þá væri vel þegið ef viðkomandi gæti látið mig vita hér eða í símanúmerinu hér fyrir ofan :)

Síðan væri ég líka til í að skoða þennan 535i ef einhver veit hvað varð af honum:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=7506

Er einhvern veginn að verða hrifnari og hrifnari af 535i :twisted: en hinir koma hins vegar alltaf til greina.
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby zneb » Fri 18. Feb 2005 19:20

saemi wrote:Félagi bróður míns á þann bíl einmitt. Hann var að auglýsa eftir rúðu hérna um daginn. En sá bíll er dýrari en 600 þús.


Já mig grunaði einmitt að hann væri aðeins dýrari þannig að ég þarf að skoða það mál. Mátt samt alveg tékka svona uppá gamanið hvort hann sé að hugsa um að selja á næstunni.
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby Einsii » Fri 18. Feb 2005 19:52

Hvað seigiru, enn voða fastur á þessu með litinn ?
Ég hef annars flott eintak fyrir þig
535i BSK
Og verðið getur variað eftir hvað þú villt gera í felgumálum ;)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby saemi » Fri 18. Feb 2005 20:14

Blessaður vertu, þessi 535i bíll er akkurrat það sem þig vantar!

ÞÓ að hann sé ekki svartur. Miklu betra að þrífa bíla sem eru ekki svartir.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby zneb » Fri 18. Feb 2005 20:48

Já veistu, ég er ennþá frekar fastur á litnum þótt að, eins klikkað og þetta kann að hljóma, ég sé nú farinn að pæla í bíl sem er 2falt meira ekinn og verr búinn en þinn fyrir það að vera svartur :roll: . Reyndar ódýrari á móti en eins og ég segi, mér finnst þessir bílar bara svo djöfull mikið bjútí svartir.

Ég einfaldlega dýrka að bóna og þrífa svarta bíla enda fékk svarti benzinn hennar mömmu nánast aldrei að verða óhreinn þegar ég var alltaf á honum áður en ég eignaðist bílinn minn og alltaf með góða bónhúð. Hugsa að fólki hafi farið að finnast ég hálf klikkaður því það mátti varla sjást örlítið ryk á benzinum á sumrin því þá var ég farinn útá þvottaplan að þvo :). Því miður ekki hægt að vera jafn smámunasamur á veturna vegna drullugra vega og skorts á aðstöðu þótt ég hafi stundum leitað lengi að opnum þvottaplönum með rennandi vatn. Reyndar líka ágætis afsökun fyrir að taka smá rúnt en mútta var samt bara nokkuð sátt með það :D

En já, það er kannski auðveldara að halda d-bláum bíl "hreinum" en mér finnst bara þess virði að halda svörtum bíl hreinum og með sem mest "swirl free" lakk. Það sést þá allavega hversu vel það er hugsað um lakkið og þá kanski bílinn í leiðinni. Og ef þið viljið sjá hvað ég get verið smámunasamur á þrif, kíkið þá á http://www.bettercarcare.com. Gaurinn þar er idolið mitt í bílaþrifsmálum 8). Mjög góð síða um allt sem tengist bílaþrifi/bóni o.þ.h.

En ég hef þinn samt alltaf í huga. Greinilega eðaleintak! En næsta bíl ætla ég að eiga í þónokkurn tíma og ég ætla því að skoða möguleikana aðeins betur þar sem ég á gott eintak af sunny gti (believe it or not) sem dugir vel þangað til ég finn þann rétta eða þá að ég gefst upp á þessari litadýrkun minni og versla þinn :wink:
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby Einsii » Fri 18. Feb 2005 20:55

saemi wrote:Blessaður vertu, þessi 535i bíll er akkurrat það sem þig vantar!

ÞÓ að hann sé ekki svartur. Miklu betra að þrífa bíla sem eru ekki svartir.

Og þetta er maðurinn sem ætti með réttu að vera með BMW logo á enninu :D og flutti bílinn inn.. En Royal blue metallic er rosalega góður ef hugsað er almenilega um hann plús það að hann var massaður nýlega og er enn betri eftir það.:)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby svavar » Sun 20. Feb 2005 02:25

zneb wrote:
Væri vel til í að skoða hann núna en heyrði samt að núverandi eigandi hefði slædað á kant fljótlega eftir að hann fékk bílinn og tjónað felguna allverulega en samt keyrt á henni í góðan tíma laskaðri :?

Bíllinn átti semsagt að hafa fengið frekar slæmt orð á sig og fáir sem vilji því kaupa hann í kjölfarið er mér sagt. Síðan virtist eigandinn ekkert geta sagt um hvort það væri e-ð til að staðfesta þessa km-tölu (eigendaferill, þjónustubók eða e-ð þess háttar).

Er samt til í að skoða þann bíl.



Vá maður verður greinilega að passa sig hvað maður segir við fólk. Ég rispaði felguna aðeins þegar ég var að bakka í stæði sem er leiðinlegt en við því er ekkert að gera nema kaupa nýja, hann er á koppum núna því að kaupa vetrardekk undir 17" rondel felgurnar er ekki að fara að gerast $$$,,

Síðan virtist eigandinn ekkert geta sagt um hvort það væri e-ð til að staðfesta þessa km-tölu (eigendaferill, þjónustubók eða e-ð þess háttar).


Ef þetta á að vera ég? núverandi eigandi get ég sagt þér alla þessa hluti
en bíllinn er ekki til sölu.





:lol: :lol:
when i go out driving i endanger others then myself
svavar
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 4
Joined: Mon 14. Feb 2005 15:39

Postby IceDev » Sun 20. Feb 2005 02:42

Held að þetta sé ekki mjög traustvekjandi undirskrift þegar að þú ert að leiðrétta hann :)
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby zneb » Sun 20. Feb 2005 18:38

Já, enda heyrði ég þetta bara, reyndar frá félaga mínum sem ég trúi nokkuð vel og sagðist hafa horft á felguna víbra allverulega þegar hann keyrði á eftir þér. En ég ætla ekkert að segja neitt meira um þetta þar sem ég veit svo sem voða lítið um það og það getur vel verið að þetta sé bara rugl.

Annars skil ég vel að þú sért með hann á koppum núna fyrir vetrardekkin enda ekki beint sniðugt að vera á svona felgum á veturna í tjörunni og vibbanum :) . Þægilegt að þurfa ekki heldur alltaf að vera að umfelga.

Og já, semsagt þá var spurt að þessu með kílómetratöluna, eigendaferil o.þ.h á sölusíðunni fyrir bílinn og svaraði þáverandi eigandi því ekki þannig að ég hefði nú haldið að flestir tækju því þannig að slíkt væri ekki fyrir hendi. En það er þá bara misskilningur hjá mér :roll:
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby zneb » Sun 20. Feb 2005 18:42

Einsii wrote:
saemi wrote:Blessaður vertu, þessi 535i bíll er akkurrat það sem þig vantar!

ÞÓ að hann sé ekki svartur. Miklu betra að þrífa bíla sem eru ekki svartir.

Og þetta er maðurinn sem ætti með réttu að vera með BMW logo á enninu :D og flutti bílinn inn.. En Royal blue metallic er rosalega góður ef hugsað er almenilega um hann plús það að hann var massaður nýlega og er enn betri eftir það.:)


Fannst einmitt að það mætti massa hann af myndunum að dæma :) . Ég er líka sammál því að þetta sé fallegur litur og það eru örugglega margir sem myndu taka þennan lit frekar en svartan.
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Postby zneb » Wed 23. Feb 2005 22:11

Veit enginn um þennan svarta 535i hér fyrir ofan eða einhvern eins/svipaðan til sölu??
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Next

Return to Vil kaupa - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests