Þetta er minn fyrsti póstur á spjallinu, enda er ég nýbakaður og stoltur BMW eigandi! Ég byrja nú bara lítið í 318is en sá bíll afkastar nú 140 hestum!
Allavega! Þá er slit á stýrinu, og ég hef ekki beint efni á að fara að kaupa nýtt sportstýri í kvikindið(34.900kr) því var ég að pæla hvort að það sé ekki einhver hérna í borginni sem lagar svona lagað?
Sömuleiðis er slit á gírhnúðnum en ég kaupi hann líklega bara.

