Olíuskipti á sjálfskiptingu?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Olíuskipti á sjálfskiptingu?

Postby lettinn » Tue 01. Feb 2005 17:12

Hvernig er það, ég var að heyra að það ætti að vera einhver eilífðarolía á sjálfskiptingunni á e-36 bílnum mínum, er eitthvað til í því? Á maður þá bara að láta þetta vera eða hafið þið snillingarnir eitthvað svar við þessu?
lettinn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 33
Joined: Mon 29. Sep 2003 17:17

Postby Höfuðpaurinn » Thu 03. Feb 2005 11:12

ég ætla nú ekki að kalla sjálfan mig einhvern bmw snilling en ég hef aldrei heyrt um eilífðarolíu á sjálfskiptingu áður... hef bara heyrt hvað mönnum finnst réttur tími á milli skiptingu á olíu og síu á þeim mislangur..
hef alveg heyrt menn tala um 40-100 þús. km. eftir bílum, mjög algengt er svona 60-80 þús. km. og að mínu mati myndi ég bara skipta ef það er orðið mjög langt síðan það var gert síðast... held að þú tapir engu á því. annars geturu líka alltaf bjallað í b&l eða tb og spurt þá!
E36 325ia 1993 (seldur)
E34 520i 1992 (seldur)
og eitthvað af öðru dóti
Höfuðpaurinn
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 356
Joined: Tue 11. Jan 2005 11:01

Postby Logi » Thu 03. Feb 2005 11:45

BMW gefur það upp að aldrei þurfi að skipta um olíu á sjálfskiptingum (man ekki alveg hvenær það var byrjað á þessu). Ef sjálfskiptingin er hins vegar farin að hegða sér eitthvað undarlega er hægt að skipta um olíu.... Tala bara við þá í B&L eða TB!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby oskard » Thu 03. Feb 2005 14:44

Logi wrote:BMW gefur það upp að aldrei þurfi að skipta um olíu á sjálfskiptingum (man ekki alveg hvenær það var byrjað á þessu). Ef sjálfskiptingin er hins vegar farin að hegða sér eitthvað undarlega er hægt að skipta um olíu.... Tala bara við þá í B&L eða TB!


sama er um drifin í nýrri bílum þau eru sealuð og það á aldrei að skipta um á þeim :)
oskard
 

Postby jonthor » Thu 03. Feb 2005 14:50

Já, ég leitaði mikið að þessu fyrir minn bíl. En það er á tékklistanum fyrir inspection II á E36 að skipta um olíu. Sumir segja hins vegar að það þurfi ekki að skipta um olíu á skiptingunni og drifinu. Eftir að hafa skoðað þetta allt saman vel þá sannfærðist ég um að það er þess virði að skipta um þetta á mínum ( sem er beinskiptur) í inspection II þ.e. á 75k fresti. Er einmitt nýbúinn að láta skipta um hjá mér.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby oskard » Thu 03. Feb 2005 14:52

jonthor wrote:Já, ég leitaði mikið að þessu fyrir minn bíl. En það er á tékklistanum fyrir inspection II á E36 að skipta um olíu. Sumir segja hins vegar að það þurfi ekki að skipta um olíu á skiptingunni og drifinu. Eftir að hafa skoðað þetta allt saman vel þá sannfærðist ég um að það er þess virði að skipta um þetta á mínum ( sem er beinskiptur) í inspection II þ.e. á 75k fresti. Er einmitt nýbúinn að láta skipta um hjá mér.


svona af forvitni veistu hvort það var sett sjáfskiptingarolía eða gírolía
þegar það var skipt um ?
oskard
 

Postby Halli » Thu 03. Feb 2005 23:59

Ef þetta er sjálfskiftur bíll þa myndi ég láta skipta um síu og vökva
ég mæli með T.B
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby jonthor » Fri 04. Feb 2005 08:34

oskard wrote:
jonthor wrote:Já, ég leitaði mikið að þessu fyrir minn bíl. En það er á tékklistanum fyrir inspection II á E36 að skipta um olíu. Sumir segja hins vegar að það þurfi ekki að skipta um olíu á skiptingunni og drifinu. Eftir að hafa skoðað þetta allt saman vel þá sannfærðist ég um að það er þess virði að skipta um þetta á mínum ( sem er beinskiptur) í inspection II þ.e. á 75k fresti. Er einmitt nýbúinn að láta skipta um hjá mér.


svona af forvitni veistu hvort það var sett sjáfskiptingarolía eða gírolía
þegar það var skipt um ?


Hef ekki Guðmund, en af því sem ég hef lesið þá virðast menn ekki vera að nota sömu olíu þegar þeir eru að skipta um þetta sjálfir.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests