bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 18. Jun 2025 20:53

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 108 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Aug 2004 22:08 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
gunnar wrote:
Sumir greinilega að vinna heimavinnuna sína ;)


Skólinn byrjar ekki fyrr en eftir mánuð, hér er 28 stiga hiti og ekki hægt annað en að "chilla" INNI!

8) 8) 8) 8)

Veit einhver hver staðan er í þessum skoðanaskiptum :?:

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Aug 2004 22:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Sama hvað spekingarnir höldum fram hérna á spjallinu þá er staðan alltaf sú sama.. 10-0 fyrir BMW.

BMW samsteypan er að græða á tá og fingri (unlike many other), það má einhver segja þeim að þeir séu að gera þetta vitlaust, en ég ætla ekki að gera það.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Aug 2004 23:11 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
:lol: :lol: :lol:
Góður.

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 09:07 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
fart wrote:
Sama hvað spekingarnir höldum fram hérna á spjallinu þá er staðan alltaf sú sama.. 10-0 fyrir BMW.

BMW samsteypan er að græða á tá og fingri (unlike many other), það má einhver segja þeim að þeir séu að gera þetta vitlaust, en ég ætla ekki að gera það.


Þeir hafa auðvitað notið góðs af niðursveiflunni hjá Benz - en ég hef nú verið ötull talsmaður hönnunarstefnu BMW síðan Bangle tók að setja sitt mark á bílana og heildar stefna fyrirtækisins er að skila árangri.

En við verðum að býða og sjá hver þróunin verður eða hvort afleiðingarnar af breyttum áherslum í M deildinni verða jákvæðar eða neikvæðar.

En ég held að engin ætti að mótmæla því hvar hefðin liggur hjá BMW hvað sportlega eiginlega varðar.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 10:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
bebecar wrote:
fart wrote:
Sama hvað spekingarnir höldum fram hérna á spjallinu þá er staðan alltaf sú sama.. 10-0 fyrir BMW.

BMW samsteypan er að græða á tá og fingri (unlike many other), það má einhver segja þeim að þeir séu að gera þetta vitlaust, en ég ætla ekki að gera það.


Þeir hafa auðvitað notið góðs af niðursveiflunni hjá Benz - en ég hef nú verið ötull talsmaður hönnunarstefnu BMW síðan Bangle tók að setja sitt mark á bílana og heildar stefna fyrirtækisins er að skila árangri.

En við verðum að býða og sjá hver þróunin verður eða hvort afleiðingarnar af breyttum áherslum í M deildinni verða jákvæðar eða neikvæðar.

En ég held að engin ætti að mótmæla því hvar hefðin liggur hjá BMW hvað sportlega eiginlega varðar.


Reyndar er þetta ekki alveg rétt hjá þér. Niðursveiflan hjá Benz er afleiðing velgengni BMW (not the other way around). Vel heppnaðir þristar og fimmur, og svo X5 hafa sett BMW á topp þeirra bílaframleiðenda sem eru að græða pening og sækja markaðshlutdeild. Ekki taka það frá þeim.

Hönnunarstefna Bangle hefur verið gagnrýnd mikið, en hún er samt akkúrat það sem BMW þurfti.

Svo virðist sem að kröfur manna séu búnar að breytast mikið frá því fyrir 20 árum síðan.

Nú vilja menn hafa bíla örugga, þægilega, aflmikla og sportlega (og jafnvel 4x4 því miður). Það er auðvelt að sýna fram á það, t.d hefur Porsche grætt gífurlega á SUV, sama með BMW og VW, og á tímabili virtist sem Benz myndi gera það líka nema hvað ML var "Massive Lemon".

Ég held líka að menn séu að gleyma því að M deild BMW var ekki stofnuð til að gera götubíla, heldur keppa á braut. Síðan þá hefur deildin einbeitt sér að því að koma racecar technologi inn í mass market bíla. Þeim hefur tekist það með afbrigðum vel (ekki sent frá sér misheppnaðan M bíl síðan) því að hvert og eitt upgrade af M módeli hefur verið hraðskreiðari en gamla týpan. Það kalla ég framþróun.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 11:49 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Nei - assskotinn. Ég held að það megi nú skrifa stærri hlutann af aukinni markaðshlutdeild BMW á mistök hjá Benz og þar er af NÓGU að taka, A Benz og elgsprófið, E línan þótti misheppnuð og bilaði talsvert þegar hún kom með kringlóttu framljósin og ML jeppinn skilur eftir sig parta hvert sem hann fer. Við þetta bætist svo sameining við Chrysler þar sem flestir bestu menn Daimler-Benz fóru þangað yfir til að blása lífi í ameríkanana!

BMW hefur ekki gert nein alvarleg mistök síðustu 20 árin og sífellt nálgast Benz þangað til þeir tóku fram úr þeim með E39 bílnum. þýðir samt ekki að þeir megi sofna á verðinu :wink:

Ef þetta er vegið þá hljóta menn held ég að sjá það liggja fyrir hvernig markaðshlutdeild breytist BMW í hag.

Menn tala mikið um í dag að Benz sé ekki byggður eins og áður, W140 og W124 taldir vera síðustu "alvöru" Benzarnir.

Það er hinsvegar nóg til af alvöru bimmum.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 11:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Ok, ég veit greinilega ekkert um þetta Ingvar.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 11:55 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
fart wrote:
Ok, ég veit greinilega ekkert um þetta Ingvar.
:oops:

Afsakið félagi :wink:

En ég held bara að þetta sé meira Benz að þakka :lol:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 13:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Þeir í BMWworld virðast líta á BMW eins og draumaverksmiðju og þeir skrifa öll sín quote þannig

Einnig er ég nú alveg viss um að allt sem stendur á internetinu sé heilagur sannleikur, sérstklega þegar maður pickar eitthvað inn í google.com og vitnar svo í það

V8 vélin og I6 M30 vélin eru sama sagann
Ég held meira að segja að V8 vélin hafi verið þróuð í racing og 540/740 bílunum á sama tíma en þeir þróuðu ekki M30/S36 vélina sem race vél fyrst heldur M30 sem var svo sett á twincam hedd og gert að race vél

einnig viltu ekki tala um dekk og fjöðrun, og nefnir að það sé útúrdúr, hvernig má það vera að það sé úturdúr þegar við erum að tala um performance í bílum?? Og ekki segja að það skipti engu máli því að það skiptir öllu máli,,

Með þyngd í bílum, vissiru það að ef þú bættir á bíl 20gr af málm þá geturru tekið í burtu 20hö í t,d 3.6 M5 vél,, málið er hvar þú myndir setja þessi 20gr,, þannig að þyngd skiptir máli á fleiri stöðum en bara í boddýinu, t,d með því að keyra léttari felgur og léttari málm í þeim hluta fjöðrunar sem hreyfist,,

Í einni tilvitnuninni þá kemur fram að þeir létta bíla eða auka hö til að fá meiri hröðun, og ef ég man rétt þá er það ekki hröðun sem ákvarðar einungis "performance" bíls, fína fólkið hjá BMWworld nefnir ekki performance heldur bara accelaration

Að segja að léttir bílar höndli betur er aftur vitlaust, þyngri bíll getur höndlað betur,
hvort höndlar betur E21 323i eða E39 M5?? hvor er þyngri hvor er "feitarri" , og þar sem að þú ert ekki að tala um dekk og fjöðrun þá skaltu útskýra það fyrir mér hvernig þyngri bíll getur höndlað betur??

Það er bara svoleiðis Bebecar að þyngri bílar geta performað betur en léttari þótt að þú sért búinn að vera að halda öðru fram, einnig að kraftminni bíll getur aukið hraðann hraðar en kraftmeiri bíll,,

svo með BMW M,
Í venjulegri samsteypu eins og BMW er þá eru það ekki hressir bílaáhugamenn sem ákveða hvað er gert ,, heldur eru það pappírspésar sem eru að leita að meiri pening fyrir hluthafa, það er ekkert annað sem skiptir máli, BMW spilar á long term gróða, og það vinnst með því að láta eins og þeir séu að hugsa um okkur neytandann,,

Hvers vegna heldurru að það sé eitthvað "philosophy"? Svo að BMW geti sagts gera þetta og gera hitt en ekki þetta og hitt, til að einangra þá mögulegu neytendur sem myndu versla bíl byggðum á þessu philosophy,
Þeir smíða Lúxus Bifreiðar beint að þeim sem hafa gamann af því að aka bílum og munu því kaupa BMW aftur og verður því að vera gamann að aka bílnum,
M deildinn hefur sama markmið að smíða bíla sem eru spennandi og eiga eftir að skera BMW frá öðrum bílaframleiðendum, annars myndu þeir bara gera eins og AMG, stinga SC á allt og nýjar felgur, smá dót hér og smá dót þar og þú ert kominn með tryllitæki sem allir vilja, en á endanum snýst málið um að selja selja selja og græða græða,


M deildin hefur fengið brake annað slagið ,t.d þegar þeir voru beðnir um að þróa vélina í McLaren F1 bílinn, og þegar BMW var í DTM á sínum tíma, en það er annað sem er að gerast í M deildinni og það er F1 núna, og hvers vegna heldurru að BMW sé í F1??
Til að græða peninga, þetta er góð auglýsing uppá nafnið, og endingu véla BMW M deildarinnar,

Þeir fóru ekki í F1 til að vinna keppnir uppá það eitt að vinna for the fun of it, þetta er allt stórt plan um að græða sem mesta peninga og líta vel út gagnvart áhugamönnum á sama tíma,,

Það er ekki CSL 318is til því að BMW finnst það ekki fitta í sig Philosophy sem er lúxus bílar sem performa og eru frábærir,, því að þú getur fengið sama performance í 330i Sport,,

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 13:32 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég náði nú ekki alveg hver punkturinn var hjá þér...

En þú ert staðráðin í því að þræta við mig um eitthvað annað en ég er að tala um. Lestu þetta aðeins betur sem ég skrifaði og mundu að BMW er eldra en 25 ára - þeir eiga MJÖG langa sögu.

Síðan er megin munur á okkar spjalli, ég er að tala um hvernig ég tel að BMW ætti að hafa M og CSL t.d. en þú talar enn og aftur eins og þú vinnir þarna :shock: -

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 13:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
bebecar wrote:
Ég náði nú ekki alveg hver punkturinn var hjá þér...

En þú ert staðráðin í því að þræta við mig um eitthvað annað en ég er að tala um. Lestu þetta aðeins betur sem ég skrifaði og mundu að BMW er eldra en 25 ára - þeir eiga MJÖG langa sögu.

Síðan er megin munur á okkar spjalli, ég er að tala um hvernig ég tel að BMW ætti að hafa M og CSL t.d. en þú talar enn og aftur eins og þú vinnir þarna :shock: -


Ég er að þræta við þig um það sem þú sagðir, að léttari bílar þýði meiri performance, og að til þess að fá meiri performance í M bílum þá sé málið að létta þá bara með því að taka dót úr eða skipta yfir í önnur efni

Það sem ég vill meina er að það þarf ekki að létta bíl til að láta hann performa betur, og því getur þyngri bíll performað betur en léttur bíll,

Enn einhvern veginn viltu ekki taka því að það sé hægt!!
Á minn bíll eftir að höndla betur en E46 CSL þótt að minn sé léttari ,, það dettur engum í hug að ýminda sér það og ég ekki heldur, hvað með 318i E30 sem vegur 1000kg, ertu að segja mér að hann höndli betur því að hann sé léttari?

Ef einu rökin þín eru að það er minni þyngd í bílnum og það muni láta hann höndla betur og eða performa betur ,, þá þurfum við ekki einu sinni að tala um þetta því að það er ekki hægt að rökræða við einhvern sem vill ekki hlusta á rök annara og melta þau og dæma svo hvort að rökin eigi við eitthvað að styðjast

Og ef þetta eru bara einhverjar pælingar eða theories hjá þér um að léttari bíll muni höndla betur þá get ég sagt þér það að það þarf ekki að vera málið þegar kemur að bílum

t.d

Það sem maður vill halda um bíla

léttari bíll eyðir minna en þyngri bíll
kraftmeiri bíll hraðar sér meira en kraftminni bíll
léttur bíll höndlar betur en þungur bíll
stór bíll er þægilegri en lítill bíll

Ekkert af þessu er staðreynd og því ekki hægt að segja að það sé staðreynd,,

Ég hef gamann af rökræðum og ég skil þína hugsun á að léttari bíll sé betri en þyngri, en málið er bara að léttari bíll er ekki endilega betri en þyngri bíll,, það er svo rosalega markt sem telur inní performance bíla og þyngd er einn hluti þess en ekki númer eitt,

númer eitt í öllu performance bíla eru dekkinn sem eru undir bílnum
númer tvö er fjöðrunar tegund bílsinns
númer þrjú gæti verið þyngd og þyngdardreifing(samt er þyngdardreifing mikilvægarri en massin sjálfur)
númer fjögur hestafla band vélarinnar samtengt gírhlutföllunum í kassanum og lokahlutfallið

svo má telja áfram alla hluti sem eru í bílnum og nefna afhverju þeir hafa áhrif á performance bílsins, svona að mestu allaveganna , útvarpið hefur lítið með performance að gera nema uppá þyngd og þyngdar dreifingu

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 13:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Afhverju performar E30 M3 betur enn allir hinir E30 bílarnir(2dyra eins og M3) þegar M3 er þyngstur af þeim öllum og er með þrengra togband heldur en hinir??

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 14:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Þetta er síðasta commentið mitt varðandi þetta efni, þó svo að ég sé viss um að ég komi ekki til með að eiga síðasta orðið.

Mín skoðun er sú að sumir þurfi að leggja gömlu bílablöðunum sínum og kaupa ný, hætta að lesa 20ára gömul review yfir bíla samhliða reviews yfir nýja bíla og reyna að bera saman. Berið bara saman facts og figures og þá sjáið þið að þróunin hefur verið gífurleg, til hins betra. Handling, power, safety, technology... allt.

NB... margir sögðu að Porsche 911 myndi líða undir lok þegar hann var gerður vatnskældur, margir sögðu að það sama myndi gerast þegar Harley byrjaði að vatnskæla.

Porsche (sem ég treysti fullkomlega til að framleiða 100% fun factor bíla) virðast ekki hafa áhuga á því að framleiða einhverja pínu litla, ultra létta sportara, meira að segja 996 er monster miðað gamla 911 en samt að performera miklu betur. I wonder why Porsche sé svona stór í dag.

kannski væri bara best að halda í gamlu viðargrindina (sumir segja það besta efni til að smíða grind úr).

Það sem einhverjum finnst, heldur að sé rétt eða eða las upp úr gamalli grein getur alveg verið góð og gild skoðun, en ef það væri rétta skoðunin, þá væri 911 ekki svona stór og þungur, þristurinn svona stór og þungur, og flest allt svona stórt og þungt skv bebecar staðlinum.

Og annað, hvað halda menn eiginlega að M2 myndi kosta ef hann ætti að vera með sömu vél og E46 er núna með (eða CSL) með carbon bodyparts, og öðru ultra léttu stuffi. Menn verða að átta sig á því að teppi kosta ekki boru, og aftursæti ekki heldur. Það að strípa bodyshell sparar ekkert, en að bæta carboni utaná kostar shitloads.

Það er mjög góð ástæða fyrir því að M3 CSL kostar þessa seðla, og n.b. það er pappi og plast í honum. EF BMW hefði farið alla leið og notað Carbon í stað pappa og plasts þá hefði þessi bíll farið allt of hátt í verði.

Takið bara verðmismunin á E46 M3 SMG2 og E46 M3 CSL, leggið það svo ofan á 1xx bíl, og spáið í það hvort einhver myndi kaupa. tæki maður ekki frekar GT3 RS.

Og... M1 var gersamlega misheppnað project from A-Z.. en núna þegar hann er aðeins viðráðanlegri í verði þá er einhver nostalgía sem grípur menn og fær þá til að segja að M1 hafi verið góður bíll. Underpowered, overpriced og outclassed.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 14:53 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
gstuning wrote:
Afhverju performar E30 M3 betur enn allir hinir E30 bílarnir(2dyra eins og M3) þegar M3 er þyngstur af þeim öllum og er með þrengra togband heldur en hinir??


Auðvitað GETUR þyngri bíll performerað betur en léttari! En léttari bíll með jafngóða uppsetningu og jafn afl o.s.frv. allt nema þyngd performerar samt betur.

Ég er ekki að þræta um hvað er hægt! Ég tel bara að bílar séu almennt of hlaðnir óþarfa búnaði í dag. Það er mín skoðun og margra annarra og þetta á auðvitað sérstaklega við um performance bíla.

Þyngd dregur úr performance og það er ekkert hægt að mótmæla því! Það er fullt af öðrum hlutum sem gera það líka, en þyngd er vandamálið sem nýjir performance bílar eru að glíma við í dag.

Veistu eitthvað um Lotus Elise (þetta er ekki bannorð ennþá er það :?: :roll: :wink: ). Afhverju voru þeir að vesenast með að hafa hann svona léttan?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 09. Aug 2004 14:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
fart wrote:
Þetta er síðasta commentið mitt varðandi þetta efni, þó svo að ég sé viss um að ég komi ekki til með að eiga síðasta orðið.

Mín skoðun er sú að sumir þurfi að leggja gömlu bílablöðunum sínum og kaupa ný, hætta að lesa 20ára gömul review yfir bíla samhliða reviews yfir nýja bíla og reyna að bera saman. Berið bara saman facts og figures og þá sjáið þið að þróunin hefur verið gífurleg, til hins betra. Handling, power, safety, technology... allt.

NB... margir sögðu að Porsche 911 myndi líða undir lok þegar hann var gerður vatnskældur, margir sögðu að það sama myndi gerast þegar Harley byrjaði að vatnskæla.

Porsche (sem ég treysti fullkomlega til að framleiða 100% fun factor bíla) virðast ekki hafa áhuga á því að framleiða einhverja pínu litla, ultra létta sportara, meira að segja 996 er monster miðað gamla 911 en samt að performera miklu betur. I wonder why Porsche sé svona stór í dag.

kannski væri bara best að halda í gamlu viðargrindina (sumir segja það besta efni til að smíða grind úr).

Það sem einhverjum finnst, heldur að sé rétt eða eða las upp úr gamalli grein getur alveg verið góð og gild skoðun, en ef það væri rétta skoðunin, þá væri 911 ekki svona stór og þungur, þristurinn svona stór og þungur, og flest allt svona stórt og þungt skv bebecar staðlinum.

Og annað, hvað halda menn eiginlega að M2 myndi kosta ef hann ætti að vera með sömu vél og E46 er núna með (eða CSL) með carbon bodyparts, og öðru ultra léttu stuffi. Menn verða að átta sig á því að teppi kosta ekki boru, og aftursæti ekki heldur. Það að strípa bodyshell sparar ekkert, en að bæta carboni utaná kostar shitloads.

Það er mjög góð ástæða fyrir því að M3 CSL kostar þessa seðla, og n.b. það er pappi og plast í honum. EF BMW hefði farið alla leið og notað Carbon í stað pappa og plasts þá hefði þessi bíll farið allt of hátt í verði.

Takið bara verðmismunin á E46 M3 SMG2 og E46 M3 CSL, leggið það svo ofan á 1xx bíl, og spáið í það hvort einhver myndi kaupa. tæki maður ekki frekar GT3 RS.

Og... M1 var gersamlega misheppnað project from A-Z.. en núna þegar hann er aðeins viðráðanlegri í verði þá er einhver nostalgía sem grípur menn og fær þá til að segja að M1 hafi verið góður bíll. Underpowered, overpriced og outclassed.


Sammála,
M1 er ekki mikill performer, heldur merkilegur bíll,
Ég las um daginn review úr einhverju blaði eða eitthvað sem var póstað hérna , um hvar M bílarnir væru nú í röðinni yfir bestu M bílanna, nýju bílarnir áttu efstu sætin algjörlega,,
Minn gaur E30 M3 var ekki einu sinni ofarlega á listanum,,
Það er súrt en nýjir bílar owna bara performance, ég get ekki ýmindað mér peninginn sem ég þyrfti að spenda svo að ég eigi eftir að geta outperformað E90 M3 V8 eða M4
en eldri hafa líklega meira fun factor og "fíling" en nýrri bílar og þess vegna fíla ég eldri bíla en það er svo geðveikt erfitt að láta eldri bíla performa eins og nýja, oft ekki peninganna virði

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 108 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group