bebecar wrote:Gunni wrote:4ra dyra E36 m3 er BARA kúl! Ég mundi helst vilja hann 4ra dyra, en það er einn galli við það að VADER sætin komu bara í coupe bílnum.
Að sjálfsögðu mundi maður ekki fúlsa við coupe bílnum, en hinn er svo miklu meira "fjölnota" ef ég má taka svo til orða.
Málið er held ég bara að kaupa 4ra dyra og kaupa vader sæti og skipta
Svo er það málið, hvenær er maður með 4, hvað þá heldur 5 fullorðna í bíl ??? Ég held ég geti talið skiptin á fingrum annarar handar.
Þannig að 4ra dyra E36 m3 er ofsa góður fjölskyldubíll
Ég er nánast alltaf með 4 í bílnum (að mér meðtöldum)![]()
Mér sýnist jonthor nú bara þurfa E39 Touring
gunnar wrote:Sammála nafna mínum, mér finnst bara doldið töff að eiga m3 4 door, þó það væri nú alveg gaman að eiga eina E36 M3 hardtop. Er ekki bara einn E36 M3 og hann er blæjugaur ?

gstuning wrote:gunnar wrote:Sammála nafna mínum, mér finnst bara doldið töff að eiga m3 4 door, þó það væri nú alveg gaman að eiga eina E36 M3 hardtop. Er ekki bara einn E36 M3 og hann er blæjugaur ?
Ósammála nöfnum mínum
Mér skilst að 4dyra M3 hafi ekki verið jafn góðir höndling lega séð og coupe,,
Gunni wrote:gstuning wrote:gunnar wrote:Sammála nafna mínum, mér finnst bara doldið töff að eiga m3 4 door, þó það væri nú alveg gaman að eiga eina E36 M3 hardtop. Er ekki bara einn E36 M3 og hann er blæjugaur ?
Ósammála nöfnum mínum
Mér skilst að 4dyra M3 hafi ekki verið jafn góðir höndling lega séð og coupe,,
Þú ert nú meiri kallinnÞað skiptir engu máli hérna á Íslandi, þar sem það er enginn staður hérna þar sem þú finnur fyrir þessum höndlunarmun. Hvort var þetta geðveikur munur eða bara smá sem þú mundir bara finna fyrir í 40 hringja kappakstri ??



bebecar wrote:Það var allt öðruvísi fjöðrun í Coupé M3 en í Sedan, og auðvitað skiptir fjöðrun HEILMIKLU máli![]()
Kemur ykkur kannski á óvart, en ég myndi alveg eins taka Coupé bílinn, betra handling og hann er ekki það mikið ópraktískari... Ég er bara ekki viss um að frúin myndi samþykkja það, reynsluakstur gæti þó breytt því

Nökkvi wrote:Munurinn á limo og coupe E36 er ekki mikill ef maður lítur fljótt á þá. Það eru samt nokkur smáatriði sem gera Coupé bílinn flottari.
1. Húddið er lengra á coupé. Það sést greinilega þegar horft er á fjarlægðina frá framhjólaskál og að framhurð.
2. Coupé er breiðari. Man ekki hve miklu breiðari en það gerir hann flottari.
3. Coupé er lægri. Gerir hann líka flottari.
4. Afturljósin á coupé eru teigðari, mér finnst það alla vega flottara.
5. Engir hurðarammar á coupé. Gerir bílinn flottari.
6. Skottlokið er beygt aðeins meira aftur á coupé en á limo. -> Flottara!
Gallarnir eru hins vegar tvær hurðir, praktískara er að hafa fjórar en ekki eins flott. Svo er líka minna pláss aftur í coupé en limo.
En sem betur fer er smekkur manna misjafn en mér finnst útlitið á coupé flottara. Limo M3 hefur samt einhvern sjarma af því þeir eru miklu færri
Users browsing this forum: Google [Bot] and 16 guests