Var að spá í að flytja inn e60 535d frá Þýskalandi, þegar ég reyndi að finna út mengunarmagnið hjá þessum bíl fékk ég 2 tölur. Annarsvegar um 160g og hinsvegar 200g, annar er með hvarfakút en hinn ekki.
Með hvarfakút er hægt að koma bílnum úr vörugjaldsflokki 150% niður í 135% þannig að hugmyndin var að setja undir hann hvarfakút úti...
Var að spá hvort tollurinn sé með 535d skráðann í einhverjum flokki, þá líklega í efri mörkum. Eða hvort hann framkvæmi mælingu eða sætti sig við pappíra frá viðurkenndum aðila sem mælir hann úti eða hingað kominn?



