Sniðug / Heimsk kaup ?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Sniðug / Heimsk kaup ?

Postby Eggert » Sat 13. Mar 2004 12:25

Sælir drengir...

Þannig er mál með vexti að mér býðst eftilvill eitt stk 7 BMW til kaups núna.

Þetta er 730 1991 árg, mjög fallegur og allt það.
Hann er ekinn 190 þús kílómetra, og aldrei verið tekin upp vél né skipting. Það kostar nú sitt að láta taka upp skiptinguna ef hún fer, og sömuleiðis ef vélin fer að vera með einhverja stæla.

Hver er ykkar reynsla á þessum bílum ? Mynduð þið vera hræddir við að kaupa svona 'mikið' ekinn original BMW ?

Og annað mál, hvað mynduð þið borga fyrir svona bíl ca$h ?
Aftur tek ég fram að hann er óaðfinnanlegur í akstri, og alveg stráheill einsog staðan er í dag.
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Schulii » Sat 13. Mar 2004 12:38

Ég myndi segja af minni reynslu að það sé ekkert athugavert við aksturinn á þessum bíl. Ég keypti mér 730i bíl í lok síðasta sumars og ef eins og þú segir þessi bíll er óaðfinnanlegur í akstri eins og minn var þá ættiru ekki að vera með miklar áhyggjur.

Ég held að það sé ekkert samasemmerki við þennan akstur sem þú nefndir og að það þyrfti að fara að taka vélina upp. Það er bara mjög misjafnt held ég. Veltur á því hvernig honum hefur verið viðhaldið fram að þessu.

Ég myndi líka segja að miðað við hvernig þú lýsir honum, að hann sé óaðfinnanlegur í akstri þá bendi það soldið til góðs viðhalds þótt ekkert sé öruggt í þeim efnum.

Minn er auðvitað beinskiptur þannig að ég get ekkert frætt þig um sjálfskiptinguna í þessum bíl eða BMW almennt.

Ég vill bara segja þér að lokum að þetta er sá allra skemmtilegasti og besti akstursbíll sem ég hef nokkurn tíma átt og það er mjög erfitt að fá leið á því að keyra hann. Algjör draumur en getur víst breyst í martröð ef þeir byrja með leiðindi.

Varðandi verð á bílnum þá er mjög erfitt að segja. Ég fæ töluna 5-600.000 í hugann ef þetta er súper eintak en kannski er það alveg útí hött, veit ekki...
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Eggert » Sat 13. Mar 2004 16:10

Takk fyrir upplýsingarnar, ég fer með hann í ástandsskoðun áður en ég kaupi ef svo fer.

Eitt enn, hafiði einhverja hugmynd um hvað myndi kosta að taka upp skiptingu í svona kagga ?
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Bjarki » Sat 13. Mar 2004 16:49

Það er örugglega mjög dýrt. Það er ekkert sem segir að skiptingin eigi að fara að gefa sig. Ef bíllinn er í raun ekinn 190þús kom og hefur fengið gott viðhald þá á þessi skipting að duga vel og lengi.
Gæti vel trúað því að það væri ódýrarast ef skiptingin myndi gefa sig að redda sér nýrri og skipta bara út, tekur ekki langan tíma.
Það ætti að vera hægt að fá ódýrara notaðar skiptingar á M30 vélar nú til dags. Reyndar kannski ekki mikið úrval af notuðu hérna á Íslandi en alltaf hægt að redda öllu. Til viðmiðunar þá kostar skipting hjá fabdirect.com 350pund eða um 45þús ekki veit ég hvað kostar að taka svona skiptingu upp.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Eggert » Sun 14. Mar 2004 16:29

Veit einhver hvað þetta boddý heitir, og gæti ég eftilvill fengið fleiri comment á þessi kaup ?
Hafa þessir bílar yfir höfuð reynst vel ?
Eru þeir að eyða eitthvað rosalega ? Varla einsog 750, er það ?

Allar hughreystingar vel þegnar :wink:
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby moog » Sun 14. Mar 2004 18:15

Þetta boddý heitir E32
BMW 318i E46 1998 (Til sölu)
User avatar
moog
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1272
Joined: Mon 18. Aug 2003 13:57
Location: Reykjavík

Postby Eggert » Sun 14. Mar 2004 19:19

Ég sé hér að Bjarki minnist á að hafa skoðað þennan bíl, TE-289. Einsog gengur og gerist þá þekkja margir hérna til hinna og þessa bíla, þannig að ef þið vitið eitthvað slæmt uppá þennan bíl, þá endilega commentið.

:P
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Eggert » Sun 21. Mar 2004 22:27

Jæja drengir, nú er kallinn að skoða einn annan BMW. Því BMW skal það vera í sólinni í sumar 8) - Eigandinn á 730 bílnum var að smóka eitthvað sterkt og vildi fá 700 kall fyrir hann, og því ætlum við bara að leyfa honum að eiga sinn bimma áfram.

Núna er það 525 '89 bimmi.. beinskiptur, leðraður, topplúga. Allur vel með farinn og kemur á 16" felgum á nýlegum sumardekkjum, auk vetrardekkja á stálfelgum. Hann er keyrður alveg böns en þó aðallega í þýskalandi, innfluttur til landsins fyrir tveim árum.

Vitiði hvað þetta boddý heitir ?
Hvaða hluti mynduð þið varast við kaup á svona bíl ?
Eitthvað spes sem þið mynduð skoða ?

Vélin soundar flott, og núverandi eigandi veit ekkert hvað hann er mikið keyrður á henni (bíllinn keyrður í heildina 322þús).

Með fyrirfram þökk fyrir svörin, ef þau verða einhver.

:wink:
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby bebecar » Sun 21. Mar 2004 22:37

Ég veit ekki hvað skal varast í þessu, bsk 525 (heitir E34) er bara frábær bíl.

Þetta er bara spurning um að kaupa á "réttu" verði eins og alltaf. Ef hann er ekkert voðalega ódýr þá er bara að láta ástandsskoða hann.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Bjarkih » Sun 21. Mar 2004 23:10

Ef þú ert að velta þessum E númerum fyrir hér þá geturu kíkað á þessa síðu: http://www.s-m-u.com/bmwkraftur/E_num.html
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby saemi » Mon 22. Mar 2004 00:17

Úúú, þetta er svolítið mikill akstur á þessum bíl. Þetta er líka gamla vélin, ekki nærri eins skemmtileg og 150hö 24V vélin sem kom 1990.

Vélin er með tímareim sem ber helst að varast, verður að skipta um hana reglulega. Svo er það "synkið" í gírkassanum, að það sé í góðu lagi.

Ég myndi ALLS ekki borga meira en svona 350 kall fyrir þennan bíl í toppstandi. Aksturinn gerir ómögulegt að selja þetta.

EN þetta eru fínir bílar, ekkert að þessu. Alveg ágætlega skemmtilegt.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Schulii » Mon 22. Mar 2004 00:50

en bíddu Sæmi.. er þetta ekki 525i bíll.. þá er hann lágmark 168 hestöfl.. ertu kannski að meina 520i bíllinn sem breyttist vélin í???
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby GHR » Mon 22. Mar 2004 00:54

Eggert wrote:Jæja drengir, nú er kallinn að skoða einn annan BMW. Því BMW skal það vera í sólinni í sumar 8) - Eigandinn á 730 bílnum var að smóka eitthvað sterkt og vildi fá 700 kall fyrir hann, og því ætlum við bara að leyfa honum að eiga sinn bimma áfram.

Núna er það 525 '89 bimmi.. beinskiptur, leðraður, topplúga. Allur vel með farinn og kemur á 16" felgum á nýlegum sumardekkjum, auk vetrardekkja á stálfelgum. Hann er keyrður alveg böns en þó aðallega í þýskalandi, innfluttur til landsins fyrir tveim árum.

Vitiði hvað þetta boddý heitir ?
Hvaða hluti mynduð þið varast við kaup á svona bíl ?
Eitthvað spes sem þið mynduð skoða ?

Vélin soundar flott, og núverandi eigandi veit ekkert hvað hann er mikið keyrður á henni (bíllinn keyrður í heildina 322þús).

Með fyrirfram þökk fyrir svörin, ef þau verða einhver.

:wink:


Ég ætlaði að kaupa þennan bíl fyrir ári síðan. Mér fannst bara gaman að keyra þennan bíl.......ekkert brak, ekki mikið veghljóð, vélin malaði og vann flott, gírkassi og kúpling fín o.sfrv
Mig minnir að hann hafi verið eitthver 180hö :roll:

Er þetta ekki annars bíllinn með ''POLE- man ekki rest :oops: )

Þessi bíll virtist eiga mikið eftir og hafa fengið gott ástand :D
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby GHR » Mon 22. Mar 2004 00:58

Rakst á þráðinn sem ég póstaði um bílinn......


http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?p=15500#15500
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby saemi » Mon 22. Mar 2004 01:09

Schulii_730i wrote:en bíddu Sæmi.. er þetta ekki 525i bíll.. þá er hann lágmark 168 hestöfl.. ertu kannski að meina 520i bíllinn sem breyttist vélin í???


Æjjjj , það sló saman í hausnum á mér. Ég var að sjálfsögðu að rugla saman 2.0 og 2.5, 2.5 er 192hö 24V, en ekki nema 170 í 12V M20 vélinni.

En það breytir ekki því sem ég var að tala um að bíllinn er ekki með M50 vélinni, heldur gömlu M20 vélinni.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 45 guests