Ég þarf að skipta um ventlaleggsþéttingar í toyotu sem við erum með hérna á heimilinu. Ég er 100% viss um að þetta eru þær sem eru alveg búnar... ekki hringirnir. Bíllinn fer með 1ltr af smurolíu á einum bensíntank sem er svona um 500km.
Mig langaði til að spyrja einhverja snillinga hvort þeir hefði reynt þetta...

Ég bara nenni ekki að taka heddið af þannig
mér datt í hug að útbúa plögg við loftpressu sem fer í kertagatið og halda þannig loftþrýstingi á strokknum til að halda ventlunum uppi meðan ég tek gormanna af og skipti svo um þéttingarnar. Auðvitað setja stimpilinn á hverju strokk í topp þegar ég geri þetta.
Hefur einhver reynt þetta??

Ég bara nenni ekki að rífa heddið af hehe.