bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 03:38

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 
Author Message
 Post subject: CO mengun E39
PostPosted: Sun 03. May 2009 03:18 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Fri 01. May 2009 16:22
Posts: 2
Er í vandræðum, fæ ekki skoðun vegna of hás CO. E39, 520 árg ´96 (´97 módel) ek. 191000 M52

Fyrst var CO mælt 0,49 í hægagangi og 0,47 í >2000 rpm (þarf að vera undir 0,3)

Lét lesa tölvu (Bifr. Bjarnhéðinn Ak.)og engrir kódar sjást.

Skipti samt um súrefnisskynjara þar sem mér fannst líklegt að það væri kominn tími á þá.
Skipti líka um olíu og kíkti á 2 kerti sem voru fín (ljósgrá og þurr, 15000 km síðan var skipt).
Setti spíssahreinsi í tankinn, og fer aftur
Þá mælist
0,49 og 0,85 og þar með endurskoðun aftur.

Talaði við fróða menn sem segja að líklegast sé hvarfinn að gefa sig, nýr kútur er víst álíka dýr og bíllinn :(
Er einhver önnur skýring? Mér eyðslan líka of mikil ca. 4 l of mikil eða um 19-20 innanbæjar, ekki skýrir hvarfinn það?

Annað: Skoðaði soggreinina, allar slöngur líta vel út og enginn sýnilegur leki. Tók samt ekkert í sundur.
í olíulokinu er mikill raki og smá gul drulla, líka talsverð gul drulla í öndunarslöngunni framan á ventlalokinu, ef ég blæs í slönguna heyrist eins og vatnsgutl einhverstaðar undir soggreininni.
Er heddpakkning að gefa sig? Hann er samt ekkert að hreyfa vatnið mikið, hef þurft að bæta á ca. 0,4l á 7 mánuðum. Reykir heldur ekki mikið.
Loftsían er nýleg ca. 7.000 km.
mér finnst hljóðið hafa breyst, meir púst hljóð.

Hvað er helst að gera. Mér finnst glatað að fara með hann á verkstæði þar sem menn fara í einhverjar happa og glappa aðgerðir þar sem enginn virðist vita hvað sé að.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: CO mengun E39
PostPosted: Sun 03. May 2009 04:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Mér tókst nú að koma 323i í gegn án hvarfakúts. Hann var þarna en hann var tómur.
Veit ekki hvort gaurinn sem skoðaði var bara að vera góður við mig eða hvort hann mældist í lagi.
Fór bara með hann heitann í skoðun og slapp.

En ég hef því miður engin ráð fyrir þig, langaði bara að deila þessu, gæti verið Thuleinn sem ég var að drekka :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: CO mengun E39
PostPosted: Sun 03. May 2009 13:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Ætti kosta svona mesta lagi 60þús að fá BJB til að skipta um hvarfa í bílnum. Þeir skiptu um hvarfana öðru megin í 540 hjá mér og það voru tveir, kostaði 55þús og þetta var gert á þessu ári.

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: CO mengun E39
PostPosted: Sun 03. May 2009 13:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Breyting á CO megnun í svona nýlegum bíl getur verið þónokkrir hlutir.

Helsta fyrir þig væri að láta lesa úr honum í tölvunni hjá B&L.

Annars hækkar CO mengun er mixtúran verður ríkari.
Í raun ætti tölvan þín að sjá um þetta frekar létt enn það er þá eitthvað sem er að trufla.

Svo sem hvarfinn, slappur lekandi spíssi. rangur kveikjutími.

Ég fór með S50B30 í skoðun með akkúrat ekkert púst liggur við hvað þá hvarfa. Þá mældist CO 0%.,
Bílinn verður að vera heitur og ekki með einhver auka efni í bensíninu svo sem bensínkerfi hreinsir.

Annars myndi ég giska á að MAF væri líka að stríða rétt nóg til að trufla stýringuna á bensíni, enn tölvan ætti að lesa af O2 og laga sig að nýjum aðstæðum samt ...

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: CO mengun E39
PostPosted: Sun 03. May 2009 14:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Gul drulla í olíulokinu veit samt ekki á gott...

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: CO mengun E39
PostPosted: Tue 26. May 2009 22:30 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Fri 01. May 2009 16:22
Posts: 2
Setti ný kerti og meira hreinsiefni og fyllti meðð V-power en það breytti engu. CO í hægagangi lækkaði þó 0,2-0,3 en við inngjöf fer slær það uppundir 1,0.
Verkstæðismenn hallast helst að því að spíssarnir séu slappir, stykkið af nýjum kostar 37.000 :argh:
Er einhver sem getur hreinsað og prófað spíssa?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: CO mengun E39
PostPosted: Tue 26. May 2009 23:13 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Posts: 1070
Location: Húsavík
Hugsanlegt að hvarfinn sé bara orðinn fullur eftir þetta mikla keyrslu?
Algjörlega þess virði að fá BJB til að smíða hvarfa undir þennan bíl ef þú heldur að það sé það sem amar að.
15-20 þúsund borgaði ég fyrir minn, var líka með m52b20.
Var mjög ánægður með þá smíði

Fá bara bogl til að lesa af, skýt á MAF-inn

_________________
bmw3


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 2 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group