Þessi boost lína á þessari túrbínu er alveg gífurlega óraunhæf.
Stefáns T3 setup sem líklega maxaðist í kringum 300hö var með full boost vel fyrir neðan 3k í 5gír sem dæmi.
Það sem gleymist þarna er algjörlega það sem skiptir í raun MIKLU meira máli heldur enn boost levelið
Því það er oftast talið frekar einfaldur reikningur að
1bar boost sem er tvöfalt andrúmsloft þrýstingur gefi tvöfalt meira loft.
Þetta er alls ekki svo.
Þessi þráður útskýrir þetta nokkuð vel
http://www.e30tech.com/forum/showthread.php?t=53939Helsta neikvæða við superchargera er að þeir þurfa meiri orku frá vélinni til að framleiða sambærilegann loft magns flutning og túrbína. Sem gróft dæmi þá myndi SC keyra 10psi á meðan túrbína keyrir bara 6-7psi til að framleiða sömu hjól hestöfl.
Og það segir okkur strax að þá þurfti strax að bera samann 6-7psi boost línu á túrbínu og 10psi boost línu á SC til að fá sambærilegann mun. Þetta samband heldur svo áfram ólínulega er boost hækkar.
Næsta er að á þessu grafi hefur verið valin alveg kol vitlaus túrbína á vélina,
#1. Hún er alltof stór,
#2. Boost ekki nógu vel stýrt
#3. Hún er ekki keyrð á nógu háu boost leveli til að nýtast rétt útaf stærð sinni
Vandamálið með túrbínur er að þær eru keyrða af gas þrýsting per tíma. Þess vegna koma þær ekki eins inn í 1gír og 2gír og
svo framvegis þar sem að vélin hraðar sér það hratt að túrbínan hefur ekki tíma til að ná ákveðnum hraða á öxlinum til að ná boostinu upp. Þetta er ekki slæmt eins og margur myndi vilja halda heldur er fínt að fá ekki of mikið power í lágum gírum því það þýðir bara gripleysi sem hjálpar ekki með hröðun.
Einnig þá hefur nýtni túrbínu compressora verið þróuð mikið betur enn á superchargerum.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
