Steinieini wrote:
Skemmtilegt að þetta lagaðist af sjálfu sér.
Stundum þarf reyndar að kveikja og slökkva nokkrum sinnum til að vinstra komi inn
Eru þessir startarar picky á volta óreglu ?
Gæti verið slappur alternator eða geymir ?
oem leiðslurnar geta verið of grannar fyrir xenon kerfið í startinu, svo að það verður spennufall í rásinni og þá kveikir það ekki á sér.
Ég held þetta sé orsökin fyrir því að margir bílar með aftermarket xenon eru oft eineygðir.
Framleiðendur passa sig náttúrulega á því að eyða ekki of miklu í eitthvað sem þarf ekki, eins og sverar leiðslur. Þessvegna má aldrei tengja auka raftæki í bíla nema annaðhvort tengja inná tengipunkt sem framleiðandi segir að megi tengja inná(oftast gefið upp hversu mörg amper má taka þar út) eða leggja nýja lögn beint frá rafgeymi.
Xenonljós þurfa ef ég man rétt 85v í startinu, sem þýðir að magnarinn þarf töluvert fleiri amper en orginal halogen ljósin.