Sælir, þar sem ég ligg með slitin liðbönd í ökla hér heima hef ég ekkert annað að gera en surfa eftir BMW stuffi og greinum á netinu. Ég hef verið að velta fyrir mér þeim vandamálum sem leysa þarf við uppsetningu á DIY supercharger kerfum.
Hvar standa þessi kerfi m.t.t. túrbo-kerfa?
Er þetta erfiðara eða léttara. Hér heima hafa menn mest verið að installa Turbo kerfum. Afhverju ekki SC?
Það er hægt að fá blásara sem henta ágætlega fyrir þetta á ebay (notaða) kosta um 500 USD jú og svo auðvitað á ebay.de líka og eru þá á um 500 € margir.
Ef við segjum sem svo að M30 yrði fyrir valinu hvaða betrumbætur þyrfti að gera á eldsneytiskerfinu? Ég hef rekist á Fuel pressure booztara sem menn hafa verið að vitna í á netinu.
Ég er ekki að tala um neitt rosa boozt.
Hvað með kveikjuna.
Ég í raun veit ekkert um þessi PIMP kerfi.
Dæmi sem ég sá mælt með á einhverjum E28 þræði:
hér
Mér sýnist svona í fljótu bragði að SC sé auðveldara heldur en Turbo ef horft er til uppsetningar.
Það sem ég hef verið skoða eru möguleikar þar sem upprunalega vélatölvan er notuð, það er, ekki skipt út fyrir standalone.
Ef þið hafið upplýsingar handa mér eða getið bent mér á góðar greinar á netinu þá væri það fráært ég er að mygla hérna heima í gifsinu.
NO MORE OLD BOYS FUSSBALL