bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 03:23

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 
Author Message
PostPosted: Fri 07. Dec 2007 15:10 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
Rúðuvökvakerfið virkar ekki hjá mér, fór með hann í tb og þeir fundu ekki útúr þessu í fljótu bragði. Hvað gæti verið að? Ekki sniðugt að geta ekki notað rúðuvökvann í drullunni sem er á götunum núna.

Og ABS kerfið virkar ekki, tb reyndu að lesa af kerfinu en gátu það ekki, náðu ekki sambandi við það, e-r tillögur?

Er einhver hér sem getur kíkt á þetta fyrir mig gegn greiðslu?

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 07. Dec 2007 19:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Rúðupissið gæti verið það að dælan í forðabúrinu sé ónýt eða þá stíflaðar leiðslur. Var þannig hjá mér, það virkaði ekki svo allt í einu datt það inn.

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Dec 2007 01:12 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 27. Apr 2007 00:51
Posts: 377
Location: tja...einhversstaðar að leika mér:D
Hvernig er það, þegar svona rúðupiss dót stíflast.
Ætti þá að heyrast eitthvað í dælunni frammí húddi þegar reynt er að sprauta.

_________________
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Dec 2007 11:59 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43
Posts: 2186
Já þá ætti að heyrast í dælunni.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 08. Dec 2007 17:42 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
já, það heyrist ekkert í dælunni, tengið fyrir dæluna var reyndar ónýtt en það var búið að græja það, virkar samt ekki

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Dec 2007 16:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
zneb wrote:
já, það heyrist ekkert í dælunni, tengið fyrir dæluna var reyndar ónýtt en það var búið að græja það, virkar samt ekki


Fyrst það heyrist ekkert í dælunni þá er hún eflaust illa tengd eða biluð, þú ættir að komast fljótt að því hvort er málið, ætti zneb ekki að getað jumpstartað dælunni með 12v til að ganga út skugga um þetta ?

Annars borgar sig eflaust líka að hreinsa spíssana og athuga hvort slöngurnar séu í lagi... ég sjálfur notaði títiprjón til að hreinsa spíssana og skaut lofti í gegnum slöngurnar, virkaði mjög vel.

Svo safnast oft skítur í botninn á forðabúrinu svo það er ekki vitlaust að taka það úr og skola það vel, bensínstöðvargæjarnir nenna ekki að sía rúðupissið því það tekur of langan tíma svo þeir taka alltaf síuna úr... því þeir eru með svo "hreinan vökva", right.

Alveg sammála þér að það er ómögulegt að keyra þessa dagana án rúðupiss.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Dec 2007 18:54 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
Þakka þennan fróðleik, hef ekki pælt í þessu með vökvann, hugsa að maður mixi þetta framvegis sjálfur svona þegar maður fer að pæla í þessu!

Annars hefur zneb ekki mikinn tíma til að dútla svona í bílnum sínum. TB fengu því bílinn í dag og græjuðu þetta hratt og vel, dælan var semsagt ónýt. Þvílíkur munur að hafa þetta í lagi.

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 7 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group