Sæll
Ég er nú alls ekki mikill maður í þessu en það sem að ég hef lært af minni reynslu er að reyna að sleppa vírburstanum, hehe þú skemmir í raun og veru efnið sem þú ræðst á með honum í staðinn fyrir að bara pússa það, ég hef farið í svona verk og hafði þá 1 rosafínan sandpappír man ekki númerið p-??? og hef notað hann í að slétta og fara örlítið útfyrir til að jafna niður, svo hef ég haft einn aðeins grófari sem ég hef notað til að ráðast á riðið og ójöfnur sem að kunna að koma vegna ryðs, og mundu að ef þú skilur eftir eina riðdoppu þá MUN hún koma í gegn aftur þannig að þá hefur verkið verið tilgangslaust, þannig að ef að það á að vaða í þetta þá er betra að gera það vel hehe
Svo ef þetta er lítið svæði þá er það í lagi að taka lakk og dippa í en vera búin að grunna svæðið áður sem að er hægt að gera með spreygrunni þessvegna en það sem að ég hef gert þegar að ég hef lagað svona í stærri kantinum þá hef ég bara farið í Orkuna og látið þá blanda saman litnum í spreybrúsa, og grunnað þetta fyrst svo sprautað yfir og það hefur abra heppnast ágætlega miðað við spreybrúsa, og því meiri hiti sem er þegar þú sprautar því betra er það þá leggst það jafnara á yfirborðið en ef að það er í kaldara lagi þá er mikil hætta á að leki kann að myndast og svo er það best að vera þá í sirka 20-30cm fjarlægð með brúsan og það er alltaf betra að fara margar ferðir yfir og lítið í einu frekar en eina feita og lekóttta rönd hehe

en svo er auðvitað líka alltaf best ef að maður hefur aðgang af alvöru sprautu
Ég er alveg örugglega að gleyma einhverju og ekki taka mig á orðinu því þetta er aðeins mín reynsla sem að hefur reyndar hepnnast vel

Vonandi gagnast þetta þér eitthvað.
