gstuning wrote:
jú, enn ef þú ert að starta bíl sem floodar þá fer bensín í olíuna, þarf ekkert að vera útaf slöppum hringjum.
Og bílinn getur keyrt þótt allir hringir væru brotnir, þannig að ég tel ólíklegt að þjappan sé nú alveg farin. Einnig að þjappan hverfi alveg á öllum er svo gott sem ómögulegt.
Hljómar eins og hann fái ekki rétt bensín, á snúning er hann nógu lean eða ríkur til að rétt haldast enn mixtúran verður of lean eða rík þegar er reynt lausagang.
Líklegasta orsökin er verulegur vacuum leki. Best að skoða allar hosur áður enn lengra er farið. Ef þetta er ekki alveg ljóst skrúfið gjöfina nóg opna til að hann haldist í gangi og dragið í gang, þegar hann er kominn í gang leitið þá uppi vacuum lekan með start spreyi t.d. Það er nóg að það sé vacuum leki á blokkinni líka (þ.e ef olíulokið er ekki á eða hosan í ventlalokið sé sprungin og svo framvegis.
Eftir að við drógum bílinn í gang í gær þá var mjög erfitt að halda vélinni í gangi nema að gefa henni vel inn og ég þurfti að gefa henni inn til að fá hana í gang þó að hún væri að snúast á 1.500-2.000sn. svo þegar ég keyrði bílinn eftir að hann komst í gang þá var hann ekki að skila öllu því afli sem að hann á að skila.
En til þess að skrúfa lausaganginn upp er þá ekki fiktað í skrúfunni á loftflæðimælinum?