Powerflex FTW
Setti þetta í subframe-ið í E34 hjá mér og ég finn voðalega lítinn mun í venjulegum akstri (er á 15" dekkjum). Helst þegar ég fer yfir pípuhlið að ég finni muninn.
Eftir mína reynslu myndi ég alltaf taka þetta fram yfir OEM í subframe. Þetta endist bara og endist annað en orginal dótið og svo er svo auðvelt að setja þetta í.
Er ekki að segja að ég myndi setja þetta í allan undirvagninn. En mér dettur ekki í hug að taka OEM subframe fóðringar oftar en einu sinni úr hverjum bíl. Hræðilega leiðinlegt.
kv.
Egill

